Boston tapaði þriðja leiknum í röð

Gabe Vincent fór á kostum í nótt.
Gabe Vincent fór á kostum í nótt. AFP/Megan Briggs

Boston Celtics á það á hættu að verða sópað úr leik í undanúrslitum úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik en liðið tapaði sínum þriðja leik í röð gegn Miami á útivelli í gær.

Leiknum lauk með öruggum sigri Miami, 128:102, og Miami leiðir nú 3:0, en Gabe Vincent átti stórleik fyrir Miami og skoraði 29 stig, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

Jayson Tatum var stigahæstur hjá Boston með 14 stig, tíu fráköst og tvær stoðsendingar en vinna þarf fjóra leiki til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.

Næsti leikur liðanna fer fram aðfaranótt miðvikudags í Miami en í hinu undanúrsliteinvíginu eigast við Denver Nuggets og LA Lakers þar sem Denver leiðir einnig 3:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert