Enski boltinn

Pep mun ekki þjálfa annað lið á Englandi en City

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Pep Guardiola segist ekki hafa trú á því að hann muni nokkunr tíman þjálfa annað félag á Englandi en Manchester City.
Pep Guardiola segist ekki hafa trú á því að hann muni nokkunr tíman þjálfa annað félag á Englandi en Manchester City. Getty/Robbie Jay Barratt

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur nánast útilokað það að hann muni nokkurn tíman stýra öðru liði á Englandi en City. Hann segist þó dreyma um að þjálfa landslið.

Samningur Guardiola við City rennur út sumarið 2023, en hann býst við að finna sér nýjan vinnuveitanda í framtíðinni.

Pep hefur greint frá áhuga sínum á að þjálfa landslið, en segist þó ekki hafa skýra sýn á því hvað framtíðin ber í skauti sér.

Eitt er það þó sem Pep sér ekki fyrir sér, og það er að hann muni nokkurn tíman þjálfa annað lið á Englandi en City.

„Ég hef sagt það mörg­um sinn­um að þegar við höf­um lokið starfi okk­ar hér lang­ar mig að upp­lifa gleðina sem fylg­ir því að fara á Evr­ópu­mót og heims­meist­ara­mót með landsliði, ég myndi vilja það en ég veit að það er ekki auðvelt að finna slíkt starf því yfirleitt eru bara fáar laus­ar stöður,“ sagði Guar­di­ola í sam­tali við Sky Sports.

„Ég held að það gæti orðið erfitt að komast að. Mig langar það, en ef það gerist ekki þá mun ég þjálfa félagslið. Það er ekkert vandamál.“

„Hérna á Englandi þá held ég að það verði alltaf City. Ef ég þyrfti að snúa aftur þá yrði það alltaf City, ef þeir vilja mig. Ég held að ég muni ekki þjálfa annað lið á Englandi. Ég er hluti af þessu félagi,“ sagði Pep að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×