Pavel Ermolinskij, nýráðinn þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfuknattleik, er formlega orðinn leikmaður félagsins.
Karfan.is greindi fyrst frá en Pavel gekk frá félagskiptum úr Val yfir í Tindastól á dögunum og frá og með deginum í dag má hann spila með liðinu í úrvalsdeildinni.
Pavel, sem er 36 ára gamall, varð Íslandsmeistari með Val á síðustu leikíð en hann tilkynnti eftir síðasta keppnistímabil að skórnir væru komnir á hilluna.
Alls varð hann átta sinnum Íslandsmeistari á ferlinum , sjö sinnum með KR og einu sinni með Val.