Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. mars 2023 06:52 Xi er fyrsti þjóðarleiðtoginn sem fundar með Pútín eftir að handtökuskipun var gefin út á hendur síðarnefnda. AP/Alexei Druzhinin Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð.
Á morgun munu leiðtogarnir og fulltrúar ríkjanna síðan funda formlega. Xi verður fyrsti þjóðarleiðtoginn til að funda með Pútín eftir að Alþjóðaglæpadómstóllinn gaf út handtökuskipun á hendur síðarnefnda. Pútín lofaði Xi sem „gamlan góðan vin“ í aðsendri grein sem birtist í dagblaði í Kína í morgun en á sama tíma birtist grein eftir Xi í Rossiiskaya Gazeta, þar sem hann kallaði eftir gagnhyggju í málefnum Úkraínu. Sagði forsetinn að friðaráætlun Kínverja, sem þeir birtu í febrúar, endurspeglaði alþjóðleg sjónarmið og miðaði að því að takmarka „afleiðingar“ af átökunum. „Það eru engar einfaldar lausnir við flóknum vandamálum,“ ítrekaði Xi þó í blaðagrein sinni. Stjórnvöld í Kína hafa sagt heimsókn forsetans til Rússlands „friðarför“ en Xi er sagður munu freista þess að setja sig í hlutverk málamiðlara á sama tíma og hann vill styrkja sambandið við Rússland. Fregnir hafa borist af því að Xi hyggist ræða við Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta eftir heimsókn sína til Moskvu. Bandaríkjamenn hafa tekið hugmyndinni fagnandi. Eru þeir sagðir binda vonir við að samtal milli leiðtoganna muni sannfæra Kínverja um að sjá Rússum ekki fyrir vopnum. Það yrði stór rós í hnappagat Xi ef honum tækist raunverulega að miðla málum og koma á alvöru viðræðum milli Rússa og Úkraínumanna. Menn virðast þó hóflega bjartsýnir á að það takist.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Kína Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Erlent Fleiri fréttir Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Sjá meira