„Við vorum bara á afturfótunum allan tímann“ Atli Arason skrifar 15. október 2021 23:00 Hlynur Bæringsson sagði að Stjörnumenn hefðu verið of soft gegn Keflvíkingum í kvöld Vísir/Getty Hlynur Bæringsson, leikmaður Stjörnunnar, var eðlilega ekki sáttur eftir 15 stiga tap í Keflavík í kvöld, 80-65. Heimamenn voru töluvert betri í frákasta leiknum undir körfunni en Keflvíkingar tóku 49 fráköst gegn 29 hjá Stjörnunni og Hlynur telur það sem eina af helstu ástæðunum fyrir tapi Stjörnunnar í kvöld. „
Við vorum aðeins of soft, þeir tóku mikið aðeins of mikið af sóknarfráköstum. Þeir stjórnuðu tempóinu og ákafanum. Mér fannst þetta ekki vera eitthvað taktískt, frekar að við vorum bara á afturfótunum allan tímann. Þeir voru bara betri heilt yfir,“ sagði Hlynur frekar svekktur í viðtali við Vísi eftir leik, áður en hann bætti við, „þeir voru einhvern veginn bara klárari í þetta, þeir voru meira ‘physical‘ og við náðum ekki stoppi í svolítið langan tíma í öðrum leikhluta.“ Aðspurður af því hvort Hlynur hefði verið ánægður með eitthvað sérstakt í leik liðsins í kvöld þá varð hann að hugsa sig um í smá tíma áður en hann nefndi tvo leikmenn sem Stjörnunnar sem honum þótti standa upp úr. „Mér fannst Gunni [Ólafsson] góður. Mér fannst Rob [Turner] búa til mikið, Rob hefði mátt klára betur en hann bjó til mikið fyrir okkur og við nýttum það ekki. Hann bjó til mikið af opnum skotum allan fyrri hálfleikinn. Ég er ánægður með þá tvo til dæmis,“ svaraði Hlynur. Stjarnan fékk alls þrjá nýja erlenda leikmenn fyrir tímabilið, tveir þeirra voru í byrjunarliðinu í kvöld, Robert Turner og Shawn Hopkins og svo var David Gabrovsek að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið í kvöld. Hlynur er spenntur fyrir þessum leikmönnum og telur þá alla eiga meira inni miðað við hvað þeir sýndu í kvöld. „Þeir eru allir góðir. David er búinn að vera meiddur en hann er flinkur leikmaður. Þetta er alvöru evrópskur fjarki, góður skotmaður og klár leikmaður. Við skorum samt bara 65 stig í dag þannig það var enginn sérstaklega heitur í þessum leik. Rob verður aðeins meira að taka til sín, eins og hann gerði í seinni hálfleik í síðasta leik [gegn ÍR] út af því að hann er mjög góður í að finna okkur hina. Ég held að þetta séu allt ágætis leikmenn,“ sagði Hlynur Bæringsson, leikmaður Stjörnunnar, að lokum.
Subway-deild karla Stjarnan Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Fleiri fréttir Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Elvar stigahæstur í grátlegu tapi „Ég á von á því að það verði allt önnur tónlist hjá þeim í Grikklandi“ „Ef við þolum þann þrýsting sem verður í Grikklandi eigum við skilið að verða Evrópumeistarar“ Aníta tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti