Hafa nú verið í vélinni í um tólf klukkustundir Árni Sæberg skrifar 22. janúar 2023 12:19 Flugvélinni var lent í slæmu veðri. Myndin er úr safni, líkt og áhugamenn um flug sjá. Vísir/Vilhelm Farþegar í flugi Icelandair frá New York í nótt hafa nú varið um tólf klukkustundum um borð í flugvélinni, þar af sex á flugbraut í Keflavík. Einn farþeganna segir stemninguna í vélinni merkilega góða miðað við aðstæður.
Aftakaveður og glerhálka er á Keflavíkurflugvelli, sem hefur orðið til þess að ekki hefur verið unnt að tæma flugvélar sem lentu þar í morgun. Helga Hlín Hákonardóttir er einn farþega í flugi Icelandair sem fór frá New York í nótt. Vélin lenti um sexleytið í morgun eftir um sex klukkustunda flug. Það gerir um hálfan sólarhring um borð í flugvélinni. Hún segir í samtali við Vísi að í þann mund sem vélinni var lent hafi gert mikið kóf og því séu farþegar ánægðir með að hafa náð að lenda yfir höfuð. Síðan hafi það gerst að önnur flugvél hafi þverað flugbrautina eftir að hafa fokið til í hálkunni. Það hafi gert það að verkum að vélin tafðist á leið sinni að flugstöðinni. Rúntuðu um í hálftíma Þá hafi flugvélinni verið ekið um flugvöllinn í um hálftíma þar til ljóst var að ekki yrði unnt að koma henni að flugstöðinni. Síðan þá hefur vélin setið kyrr. Helga Hlín segir að farþegar séu samstilltir í þeirri skoðun að um óviðráðanlegar aðstæður sé að ræða og áhöfn vélarinnar standi sig með mikilli prýði. Hins vegar segir hún það ákveðið ergelsi að flugvöllurinn hafi ekki verið sandaður í tæka tíð þegar lá fyrir að hált og hvasst yrði á vellinum. Farþegar rólegir Helga Hlín segir að farþegar séu ótrúlega rólegir miðað við biðina löngu og flugliðar sömuleiðis. Hún segir nokkur börn vera um borð og að farþegar vinni saman að því að hafa ofan af fyrir þeim. Varla hafi heyrst í þeim allar klukkustundirnar sex. Hún segir þó að biðin sé að verða erfið þeim farþegum sem glíma við líkamlega kvilla og eiga erfitt með kyrrsetuna. Þarf að komast norður í brúðkaup á morgun Helga Hlín segir engar upplýsingar liggja fyrir um það hvenær verður unnt að rýma flugvélina en að farþegar hafi verið ánægðir með að lesa að björgunarsveitir væru komnar í málið. Þá segir hún einnig óvissu vera uppi um það hvað tekur við þegar úr vélinni er komið. Hvort Reykjanesbrautin haldist opin og þar fram eftir götum. Sjálf þarf hún að komast norður til Akureyrar sem allra fyrst enda stendur til að dóttir hennar gifti sig þar á morgun.
Fréttir af flugi Veður Keflavíkurflugvöllur Icelandair Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Innlent Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Erlent Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Innlent „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Innlent Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Erlent Fleiri fréttir Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Sjá meira