Segja af og frá að lögregla leiti Samherjamanna Jakob Bjarnar skrifar 3. desember 2020 16:05 Þorsteinn Már Vilhjálmsson og þeir Kveiksmenn Helgi Seljan og Aðalsteinn Kjartansson. Allt frá því að fjallað var um umsvif Samherja í Namibíu hefur andað köldu milli Samherja og Ríkisútvarpsins. visir/vilhelm Í yfirlýsingu frá Samherja segir að ekkert sé hæft í fréttaflutningi um að namibíska lögreglan leiti starfsmanna fyrirtækisins.
Í frétt sem Ríkisútvarpið birti í fyrradag segir að lögreglan í Namibíu hafi nú um nokkurt skeið reynt að grafast fyrir um dvalarstað Ingvars Júlíussonar, fyrrverandi fjármálastjóra Samherja á Kýpur og Egils Helga Árnasonar, sem var framkvæmdastjóri Namibíustarfsemi Samherja. Það geri lögreglan með það fyrir augum að fá þá framselda til Namibíu. Villandi fréttaflutningur Samherji sendi frá sér yfirlýsingu nú fyrir stundu þar sem þessu er vísað á bug: „Namibísk stjórnvöld hafa engar tilraunir gert til að hafa afskipti af núverandi eða fyrrverandi starfsmönnum félaga tengdum Samherja. Hvorki á eigin vegum eða í gegnum samstarf við önnur ríki. Fréttaflutningur um að namibísk stjórnvöld vilji ná tali af nokkrum núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Samherja er því mjög villandi.“ Í frétt Vísis fyrr í dag af rannsókn málsins er vitnað í Namibian Sun. Þar er enginn starfsmaður Samherja nafngreindur. En Martha Imalwa, ríkissaksóknari Namibíu, er sögð vera með íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Samherja í sigtinu í tengslum við rannsókn namibískra yfirvalda á meintum mútugreiðslum og spillingu þar í landi. Í fyrrnefndri frétt Ríkisútvarpsins segir hins vegar að eftirgrennslan eftir dvalarstað þeirra Ingvars og Egils Helga komi fram í gögnum sem lögð voru fram við namibískan dómstól nýlega í tengslum við rannsókn þarlendra yfirvalda á meintum mútugreiðslum og spillingu við gerð milliríkjasamnings við Angóla. „Á meðal skjalanna sem lögð voru fyrir yfirréttinn í höfuðborginni Windhoek er 63 blaðsíðna eiðsvarin yfirlýsing frá Karl Patrick Cloete, rannsóknarlögreglumanni hjá namibísku spillingarlögreglunni ACC, dagsett 28. október.“ En Samherji segir þetta algerlega á skjön við allar upplýsingar fyrirliggjandi sem þeim hefur borist frá namibískum stjórnvöldum undanfarna mánuði. Félögin og fulltrúar þeirra hafi enda átt náið samráð við þarlend stjórnvöld um að leggja endanlega niður starfsemi sem tengdist útgerð í landinu. Engar lagaheimildir til að krefjast framsals „Í þessu sambandi vísast til þess að ríkissaksóknari Namibíu aflétti kyrrsetningu togarans Heinaste í fyrradag. Skipið hefur nú verið selt og afhent nýjum eiganda sem hefur endurnefnt það Tutungeni. Hefur skipið haldið til veiða með sömu skipverjum og áður mönnuðu áhöfn þess. Aflétting kyrrsetningarinnar var ávöxtur þríhliða samkomulags milli seljanda skipsins, sem er félag tengt Samherja, kaupanda þess og namibískra stjórnvalda,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. Þorsteinn Már Baldursson og hans menn sem mættu á fund í Seðlabankanum síðla árs 2018. Í yfirlýsingunni frá í dag er fullyrt að enginn núverandi eða fyrrverandi starfsmanna félaga í samstæðu Samherja hafi réttarstöðu sakbornings í tengslum í Namibíu og enginn þeirra hefur viðhaft háttsemi sem gæti réttlætt slíkt.visir/vilhelm Fram kemur í frétt RÚV í dag að namibísk yfirvöld hafi aflétt kyrrsetningunni gegn því að söluvirðið, 2,3 milljarðar króna, yrði áfram kyrrsett til tryggingar mögulegum upptökukröfum vegna sakamálsins sem er fyrir dómstólum. Ekki er vikið að þessum þætti í yfirlýsingu Samherja. Þar segir þó að hugleiðingar einstakra lögreglumanna í Namibíu ráði engu um þær heimildir sem gilda almennt um framsal milli ríkja í tengslum við rekstur sakamála. Namibísk yfirvöld hafa engar lagaheimildir til að krefjast framsals yfir íslenskum ríkisborgurum þar sem enginn samningur er til staðar milli ríkjanna um framsalið. „Ekkert var vikið að þessu í frétt Ríkisútvarpsins. Þess skal getið að enginn núverandi eða fyrrverandi starfsmanna félaga í samstæðu Samherja hefur réttarstöðu sakbornings í tengslum við rannsókn í Namibíu og enginn þeirra hefur viðhaft háttsemi sem gæti réttlætt það. Ráðagerðir lögreglumannsins sem gerðar voru að fréttaefni eru því tilhæfulausar.“
Samherjaskjölin Namibía Fjölmiðlar Dómsmál Sjávarútvegur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Sjá meira