PSG með fullt hús eftir átta leiki

Leikmenn PSG fagna markinu sem Idrissa Gueye skoraði.
Leikmenn PSG fagna markinu sem Idrissa Gueye skoraði. AFP

París SG er enn með fullt hús stiga eftir átta leiki í frönsku 1. deildinni í fótbolta eftir 2:0-sigur á Montpellier á heimavelli í kvöld.

PSG lék án Lionel Messi, sem er meiddur, en í fjarveru hans skoruðu miðjumennirnir Idrissa Gueye og Julian Draxler mörk Parísarliðsins.

Þrátt fyrir að stutt sé liðið af tímabilinu er PSG með tíu stiga forskot á Marseille í öðru sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert