Innlent

Logi Bergmann aftur á skjánum

Atli Ísleifsson skrifar
Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson hefur ekkert verið í fjölmiðlum frá því að mál Vítalíu Lazarevu kom upp í upphafi síðasta árs.
Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson hefur ekkert verið í fjölmiðlum frá því að mál Vítalíu Lazarevu kom upp í upphafi síðasta árs. Vísir/Vilhelm

Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sneri aftur á sjónvarpsskjáinn í gærkvöldi þegar hann stýrði upphitunarþætti fyrir leik Manchester United og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á Símanum Sport í gærkvöldi.

Logi hefur ekkert verið í fjölmiðlum frá því að mál Vítalíu Lazarevu kom upp í ársbyrjun 2022, en hann fór þá í leyfi frá störfum á útvarpsstöðinni K100 þar sem hann stýrði síðdegisþætti ásamt Sigurði Gunnarssyni.

Vítalía greindi frá því í hlaðvarpsþættinum Eigin konur að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í sumarbústaðarferð auk þess sem Arnar Grant, sem hún átti þá í ástarsambandi við, hefði veitt manni aðgang að líkama hennar fyrir þögn mannsins um samband þeirra.

Seinna kom í ljós að umræddur maður var Logi Bergmann.

Logi sagðist á sínum tíma saklaus af ásökununum en viðurkenndi að hafa farið yfir mörk þegar hann fór inn á herbergi sem hann hefði ekki átt að gera. Þá sagðist hann þegar hafa tjáð viðkomandi eftirsjá sína.

Greint var frá því í vor að Logi hefði að undanförnu starfað hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi þar sem hann vann að undirbúningi ársfundar samtakanna, auk annarra tilfallandi verkefna.

Logi stýrði þættinum í gær ásamt Bjarna Þór Viðarssyni, en í umræddum leik tryggði Manchester United sér meistaradeildarsæti á næsta tímabili með 4-1 sigri á Old Trafford.


Tengdar fréttir

Rann­sókn á máli Vítalíu gegn þre­menningum felld niður

Héraðssaksóknari hefur fellt niður rannsókn á kynferðisbrotakæru Vítalíu Lazarevu á hendur Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni. Vítalía telur gögn vanta í málinu og ætlar að kæra niðurstöðuna til ríkissaksóknara.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×