Allur afli á markað

Gunnar Ingiberg Guðmundsson skrifar um verðmyndun á afurðum hafsins.

Auglýsing

Eins og er flestum kunn­ugt um þá hefur verð­lagn­ing á upp­sjáv­ar­afla ekki stað­ist sam­an­burð þegar litið er til land­anna í kringum okk­ur. Verð­lags­stofa skipta­verðs ákvarðar síðan út frá með­al­mark­aðs­verði hvað fiskur til lóð­rétt sam­þætt­aðra útgerða selst á. Raunar finnst allt að 200% munur á sölu­verði á upp­sjáv­ar­fiski hérna miðað við Nor­eg. Veiði­gjöldin af upp­sjáv­ar­fiski eru brota­brot af því sem gengur með þorsk eða annan botn­fisk og því er með öllu óskilj­an­legt hvers vegna hag­kvæm­asta útgerðin fær lægsta veiði­gjald­ið.

Sam­kvæmt Verð­lags­stofu skipta­verðs er fisk­verð vegið með­al­tal verða á frjálsum mark­aði þrjá und­an­gengna mán­uði. Af því eru síðan tekin 20% án sýni­legrar ástæðu og jafn­framt fimm pró­sent í við­bót vegna mark­aðs­gjalda. Því borgar útgerð­ar­maður sem landar hjá sjálfum sér ekki nema 75% af með­al­verði, af þessu verði eru laun sjó­manna síðan reikn­uð.

Kveikur rakti þann 18. febr­úar 2021 hvernig útgerð háttar mál­unum þannig að þeir sjálfir kaupa­fisk­inn af sér erlendis og með því hafa þeir meiri stjórn á skatt­heimtu vegna launa­upp­gjörs sjó­manna. Þar sem sölu­fé­lagið er stað­sett í skatta­skjóli þá er skatt­heimtan af hagn­að­inum síðan minni. Þessir fjár­munir skila sér því ekki til Íslands.Lóðrétt samþætting.

Áður hefur komið fram að frjáls­lega er farið með ísmagn í fiski og hefur mun­ur­inn hlaupið á nokkrum pró­sent­um. Kveikur rakti þann 21. nóv­em­ber 2017 málið og hefur Fiski­stofa síðan þá tekið stikkprufur sem í sumum til­vikum sýna nokk­urra pró­senta frá­vik í vigtun frá því sem upp er gef­ið. Þar sem flestar lóð­rétt sam­þætt­aðar útgerðir hafa leyfi til end­ur­vigt­unar má ætla að vanda­málið hafi lítið lag­ast. Fiski­stofa hefur tekið stikkpruf­ur, þær eru hins vegar það fáar tals­ins að gögnin sem úr því koma eru ekki töl­fræði­lega mark­tæk.  

Auglýsing
Það er út af nákvæm­lega svona vanda­málum sem að leggja Píratar til að allur afli fari á fisk­mark­að. Við viljum sjá eft­ir­lit raun­gert, end­ur­vigt­un­ar­leyfin fjar­lægð. Verð­mynd­unin fari fram á opnum fisk­mark­aði og með því leið­réttum við það sem hefur mis­farist í lóð­réttu sam­þætt­ing­unni. Það eru fáir sem óska sjáv­ar­út­vegi á Íslandi ein­hvers ills. En er ekki nóg komið þegar hvergi í ferl­inu finnst afslátt­ar­laus hlekkur sem bitnar með einum eða öðrum hætti á skatt­heimtu?

Ef Píratar fá þessu ráðið ætti verð­myndun á afurðum hafs­ins að taka stakka­skipt­um. Hægt verður að fella niður Verð­lagstofu skipta­verðs. Koma ábyrgð á eft­ir­fylgni með launa­málum og samn­ings­brotum við sjó­menn til félaga þeirra og eft­ir­liti með raun­veru­legri skekkju við verð­myndun til Sam­keppn­is­stofn­un­ar. Við þurfum ekki sér­staka stofnun til þess að aðstoða útgerð­ina við að borga lægri skatta.

Höf­undur er fram­bjóð­andi í próf­kjöri Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar