4. umferð: Málfríður sjöunda, Kristrún jafnaði met

Kristrún Ýr Holm fyrirliði Keflavíkur jafnaði leikjamet félagsins í deildinni.
Kristrún Ýr Holm fyrirliði Keflavíkur jafnaði leikjamet félagsins í deildinni. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Málfríður Erna Sigurðardóttir, Valskonan reynda, lék sinn 303. deildaleik þegar Valur vann Keflavík, 2:1, í Bestu deild kvenna í fótbolta í fyrrakvöld.

Hún er þar með komin í sjöunda sætið yfir leikjahæstu íslensku konurnar í deildakeppni heima og erlendis og jafnaði þar við Guðbjörgu Gunnarsdóttur, fyrrverandi landsliðsmarkvörð. Málfríður er næstleikjahæst í efstu deild á Íslandi, þar sem hún hefur leikið alla 303 leikina.

Kristrún Ýr Holm, fyrirliði Keflavíkur, jafnaði leikjamet félagsins í efstu deild í leiknum gegn Val. Það var hennar 75. leikur fyrir Keflavík í deildinni og hún er þá jöfn Dröfn Einarsdóttur sem fór frá Keflavík til Grindavíkur fyrir þetta tímabil.

Málfríður Erna Sigurðardóttir er komin með 303 deildaleiki á ferlinum.
Málfríður Erna Sigurðardóttir er komin með 303 deildaleiki á ferlinum. mbl.is/Valgarður Gíslason

Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, er orðin næstleikjahæst í sögu liðsins í efstu deild. Hún lék sinn 157. leik með liðinu í deildinni gegn Víkingi og fór þar með upp fyrir Láru Einarsdóttur sem hefur leikið 156 leiki en spilar nú með HK. Sandra á enn langt í leikjametið en það á Arna Sif Ásgrímsdóttir, 197 leikir.

Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, er eini þjálfarinn í deildinni sem hefur verið með óbreytt byrjunarlið í fyrstu fjórum umferðunum.

Elfa Karen Magnúsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild, í 35. leiknum, þegar hún kom Keflavík yfir gegn Val.

Elísa Bríet Björnsdóttir skoraði einnig sitt fyrsta mark í deildinni, í 16. leiknum, þegar hún kom Tindastóli yfir í sigrinum á Fylki, 3:0.

Elísa Bríet Björnsdóttir, 16 ára, skoraði fyrsta markið sitt í …
Elísa Bríet Björnsdóttir, 16 ára, skoraði fyrsta markið sitt í deildinni í gær. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Breukelen Woodard, sem lék með Fram í fyrra, gerði sitt fyrsta mark í deildinni fyrir FH, sigurmarkið gegn Þrótti, 1:0.

Úrslit­in í 4. um­ferð:
Breiðablik - Stjarn­an 5:1
FH - Þrótt­ur R. 1:0
Kefla­vík - Val­ur 1:2
Vík­ing­ur R. - Þór/​KA 1:2
Tinda­stóll - Fylk­ir 3:0

Marka­hæst­ar:
8 Sandra María Jessen, Þór/​​KA
6 Vig­dís Lilja Kristjáns­dótt­ir, Breiðabliki
4 Agla María Al­berts­dótt­ir, Breiðabliki
4 Am­anda Andra­dótt­ir, Val
3 Eva Rut Ásþórs­dótt­ir, Fylki
3 Jasmín Erla Inga­dótt­ir, Val
2 Andrea Rut Bjarnadóttir, Breiðabliki
2 Birta Georgsdóttir, Breiðabliki
2 Haf­dís Bára Hösk­ulds­dótt­ir, Vík­ingi
2 Hannah Sharts, Stjörn­unni
2 Jor­dyn Rhodes, Tinda­stóli
2 Nadía Atladóttir, Val
2 Sig­dís Eva Bárðardótt­ir, Vík­ingi

Næstu leik­ir:
14.5. Valur - Tindastóll
14.5. Þór/KA - Keflavík
14.5. Stjarnan - FH
15.5. Þróttur R. - Víkingur R.
15.5. Fylkir - Breiðablik

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert