Verður arftaki Haalands hjá Dortmund

Karim Adeyemi leikur með Dortmund frá og með næstu leiktíð.
Karim Adeyemi leikur með Dortmund frá og með næstu leiktíð. Ljósmynd/Dortmund

Þýska knattspyrnufélagið Dortmund hefur gengið frá kaupum á Karim Adeyemi frá austurrísku meisturunum í RB Salzburg. Kaupverðið er um 38 milljónir evra. 

Skrifaði Adeyemi undir samning við Dortmund sem gildir til ársins 2027. Adeyemi, sem er tvítugur, er markahæsti leikmaður austurrísku deildarinnar á yfirstandandi leiktíð með nítján mörk.

Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Þýskalands og lék sinn fyrsta leik með A-landsliðinu á síðasta ári.

Adeyemi er ætlað að fylla í það skarð sem Erling Braut Haaland skilur eftir sig en Haaland fer til Manchester City í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert