Valur staðfestir komu Frederiks

Frederik Schram hefur samið við Val.
Frederik Schram hefur samið við Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frederik Schram hefur samið við knattspyrnudeild Vals til tveggja ára. Hann kemur frá Lyngby í Danmörku þar sem Freyr Alexandersson er þjálfari og Sævar Atli Magnússon er leikmaður. 

Frederik Schram er 27 ára markvörður sem hefur leikið í dönsku úrvalsdeildinni og fyrstu deildinni með Vestsjælland, Roskilde, Sönderjyske og Lyngby. 

Frederik var einnig í landsliðshóp Íslands sem fór á heimsmeistaramótið í Rússlandi árið 2018. Hann á að baki fimm A-landsleiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert