Oddvitaáskorunin: Dundaði sér við fjáraukalög í Covid Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2021 15:00 Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Willum Þór Þórsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi í kosningunum. „Ég heiti Willum Þór Þórsson, 58 ára, fimm barna faðir og er oddviti Framsóknar í Suðvesturkjördæmi. Ég er hagfræðingur, kennari og íþróttaþjálfari í grunninn og hef setið á alþingi í hátt í 8 ár.“ „Á þessu kjörtímabili sem senn er að ljúka hef ég sinnt ábyrgðarstörfum m.a. sem formaður fjárlaganefndar ásamt því að vera starfandi þingflokksformaður. Auk þess hef ég setið í efnahags- og viðskiptanefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og forsætisnefnd. Kjörtímabilið hefur verið viðburðaríkt og óvenju krefjandi, held ég að sé óhætt að segja. Næstu misseri verða mikilvæg í viðspyrnunni og miklar áskoranir m.a. á sviði efnahagsmála, ríkisfjármála og atvinnumála. Stór mál sem þarf að takast á við af ábyrgð, festu og skynsemi. Ég trúi því að reynsla mín af þeim ábyrgðarstörfum sem mér hefur verið trúað fyrir komi að góðum notum við þær áskoranir sem framundan eru.“ Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Sólsetrið í vestri af svölunum hjá mér í Kópavoginum. Hvað færðu þér í bragðaref? Þristur, skógarberjamix og bláber. Uppáhalds bók? Fyrir utan Fjárlagafrumvarpið 😊 þá er það Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) Dýrið gengur laust með Ríó Tríó. Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Ekki í þínu kjördæmi) Vestmannaeyjum. Dundaðir þú þér við eitthvað á tímum Covid og samkomutakmarkana? Hámhorf eða nýtt áhugamál, sem dæmi. Dundaði mér við fjáraukalög og bandorma svona meira og minna. Hvað tekur þú í bekk? 118,5 kg. Burstar þú tennurnar fyrir eða eftir morgunmat? Allur gangur á því. Draumastarfið? (Fyrir utan þingsetu) Knattspyrnuþjálfun. Hvað myndir þú segja við Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ef þú myndir hitta hann í einrúmi? Hyeobdong. Uppáhalds tónlistarmaður? Geri ekki upp á milli bræðrana Jóns og Frikki Dór. Þeir eru frábærir. Besti fimmaurabrandarinn? Veistu hvað sóttvarnarlæknirinn í Japan heitir? Taka Sýni. Ein sterkasta minningin úr æsku? Þegar ég byrjaði í KR. Hver er fyrirmynd þín í pólitík? Steingrímur Hermannsson af erlendum leiðtogum finnst mér mjög traustvekjandi ára yfir Angela Merkel. Besta íslenska Eurovision-lagið? Sókrates með Sverri Stormsker. Besta frí sem þú hefur farið í? Öll sumarfrín með fjölskyldunni. Uppáhalds þynnkumatur? Hlöllabáturinn hjá Simma Vill. Hve oft hefur þú farið að sjá eldgosið? Aldrei. Uppáhalds Fóstbræðraatriði? Indriði á stjórnarfundinum. Uppáhalds uppátækið frá framhaldsskólaárunum? ...hvar á maður að byrja. Líklega best að sleppa því en árin í Verzlunarskólanum voru eitt stórt uppátæki. Rómantískasta uppátækið? Frú Ása er ein til frásagnar af því.
Oddvitaáskorunin Alþingiskosningar 2021 Suðvesturkjördæmi Framsóknarflokkurinn Mest lesið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Lífið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Lífið „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ Lífið Dulin blessun að missa Baðhúsið Lífið Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Lífið Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Lífið Fleiri fréttir Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Ósáttir karlar flautuðu á Fríðu Dulin blessun að missa Baðhúsið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Metmæting á tískusýningu útskriftarnema LHÍ Mynd ársins af palestínskum flóttamanni Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Fréttatía vikunnar: Þyrlur, forsetaframbjóðendur og skemmdarverk „Það er einmanalegt að missa móður“ Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Ætlað að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Fágæt og falleg eign við Flókagötu Sjá meira