Repúblikanar í Utah bauluðu á Romney Kjartan Kjartansson skrifar 3. maí 2021 12:21 MItt Romney í ræðupúlti á þingi Repúblikanaflokksins í Utah á laugardag. AP/Rick Bowmer Fulltrúar á þingi Repúblikanaflokksins í Utah bauluðu á Mitt Romney, öldungadeildarþingmann flokksins í ríkinu, um helgina. Tillaga um að ávíta Romney fyrir að hafa greitt atkvæði með því að sakfella Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir embættisbrot var felld með naumum meirihluta.
Romney var eini repúblikaninn sem greiddi atkvæði með því að Trump yrði sakfelldur fyrir embættisbrot vegna þrýstingsherferðar hans gegn úkraínskum stjórnvöldum í febrúar 2020. Þegar Trump var aftur kærður fyrir embættisbrot fyrir að hafa æst múg til árásar á þinghúsið í janúar var Romney í hópi sjö öldungadeildarþingmanna repúblikana sem greiddu atkvæði með því að forsetinn yrði sakfelldur. Þegar Romney tók til máls á þingi flokks síns í heimaríkinu Utah um helgina var baulað hressilega á hann, að sögn Washington Post. Einhverjir þeirra tæplega tvö þúsund fulltrúa sem sátu þingið fögnuðu honum þó. „Þið þekkið mig sem mann sem segir það sem honum er í huga og ég dreg ekki dul á ég var ekki aðdáandi persónuleikagalla síðasta forseta okkar,“ sagði Romney og uppskar enn frekar baul frá fundargestum. „Farið þið ekkert hjá ykkur?“ spurði Romney eftir að hann gerði hlé á máli sínu undir baulinu í nokkrar sekúndur. Tillaga var borin upp á fundinum um að flokkurinn ávítti Romney fyrir að hafa greitt atkvæði með því að fjarlægja Trump úr embætti forseta. Í henni var Romney sakaður um að hafa ítrekað gagnrýnt forsetann og þannig skaðað bæði forsetann og flokkinn í kosningunum í fyrra. Aðrir þingmenn ríkisins voru aftur á móti lofaðir fyrir stuðning sinn við forsetann fyrrverandi. Fundurinn klofnaði í afstöðu sinni til tillögunnar. Hún var á endanum felld með 798 atkvæðum gegn 711. Sumir fundargestir eru sagðir hafa kallað „svikari“ og „kommúnisti“ að Romney. Romney sagðist í ræðu sinni harma að einhverjir flokksfélagar kynnu illa við hann en hann fylgdi sannfæringu sinni og samvisku. Uppskar hann fagnaðarlæti fyrir þau orð. Minnti hann fundargesti jafnframt á að hann hefði verið repúblikani alla tíð. „Ef þið munið það ekki þá var ég frambjóðandi repúblikana til forseta árið 2012,“ sagði fyrrverandi forsetaframbjóðandinn sem tapaði fyrir Barack Obama í kosningum þess árs. Þrátt fyrir að Trump hafi tapað kosningunum í haust og verji tíma sínum við golf í sveitaklúbbi sínum á Flórída hefur fyrrverandi forsetinn enn gríðarleg ítök í Repúblikanaflokknum. Þingmenn flokksins sem greiddu annað hvort atkvæði með því að kæra Trump fyrir embættisbrot eða sakfella hann fyrir það hafa þegar verið ávíttir í heimaríkjum sínum. „Ég skal segja ykkur nokkuð, ef við kljúfum flokkinn verðum við flokkur sem tapar,“ sagði Romney við flokksfélaga sína.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Bush sakar flokk sinn um einangrunarhyggju og andúð á innflytjendum Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum hefur gefið sig á vald einangrunarhyggju og verndarstefnu, að mati George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hann hefur sérstakar áhyggjur af orðræðu flokkssystkina sinna í garð innflytjenda. 26. apríl 2021 11:04 Hollusta við Trump borgar sig Helstu stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á þingi vestanhafs hafa grætt töluvert á hollustu sinni við forsetann. Öll hafa þau safnað fúlgum fjár í kosningasjóði sína sem að mestu hafa borist í smáum skömmtum frá kjósendum Trumps. 16. apríl 2021 11:43 Trump-lestin rúllar áfram en þingmenn vilja frekari rannsóknir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem var sýknaður af ákæru um embættisbrot um helgina, er enn með sterkt tak á Repúblikanaflokknum þó hann komi ekki óskaddaður frá málinu. 15. febrúar 2021 11:05 Réttarhöldin gegn Trump: Sex Repúblikanar greiddu atkvæði með Demókrötum Réttarhöldin gegn Donald Trump í öldungadeild Bandaríkjaþings fara ekki gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Það er niðurstaða meirihluta þingmanna deildarinnar eftir atkvæðagreiðslu sem fór að mestu eftir flokkslínum. 9. febrúar 2021 23:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Sjá meira
Bush sakar flokk sinn um einangrunarhyggju og andúð á innflytjendum Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum hefur gefið sig á vald einangrunarhyggju og verndarstefnu, að mati George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hann hefur sérstakar áhyggjur af orðræðu flokkssystkina sinna í garð innflytjenda. 26. apríl 2021 11:04
Hollusta við Trump borgar sig Helstu stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á þingi vestanhafs hafa grætt töluvert á hollustu sinni við forsetann. Öll hafa þau safnað fúlgum fjár í kosningasjóði sína sem að mestu hafa borist í smáum skömmtum frá kjósendum Trumps. 16. apríl 2021 11:43
Trump-lestin rúllar áfram en þingmenn vilja frekari rannsóknir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem var sýknaður af ákæru um embættisbrot um helgina, er enn með sterkt tak á Repúblikanaflokknum þó hann komi ekki óskaddaður frá málinu. 15. febrúar 2021 11:05
Réttarhöldin gegn Trump: Sex Repúblikanar greiddu atkvæði með Demókrötum Réttarhöldin gegn Donald Trump í öldungadeild Bandaríkjaþings fara ekki gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Það er niðurstaða meirihluta þingmanna deildarinnar eftir atkvæðagreiðslu sem fór að mestu eftir flokkslínum. 9. febrúar 2021 23:01