Höfðu hendur í hári stórtæks síbrotamanns eftir árekstur og afstungu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. október 2021 10:49 Setning Alþingis / Lögreglan Foto: Vilhelm Gunnarsson Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að stórtækur þjófur með langan brotaferil að baki skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 4. nóvember næstkomandi. Samtals er 31 opið mál á borði lögreglu sem tengist manninum. Lögregla handsamaði manninn á stolnum bíl eftir árekstur og afstungu.
Úrskurður Landsréttar var kveðinn upp á föstudaginn og birtur á þriðjudaginn. Í honum kemur fram að maðurinn sé grunaður um margítrekuð auðgunarbrot. Var hann handtekinn á stolnum bíl eftir að hann stakk af eftir umferðaróhapp þann 10. október síðastliðinn. Sama dag hafði hann pantað mat á veitingastað í Reykjavík og gengið út án þess að greiða fyrir matinn. Í úrskurðinum eru fleiri meint brot manns rakin, sum hver sem hann hefur játað að hafa framið. Er hann meðal annnars grunaður um að hafa, á tímabilinu 26. október á síðasta ári til 10. október á þessu, stolið greiðsluposa, spjaldtölvum að virði hundruð þúsunda, nokkrum iPhone-símum og dýrum rafhlaupahjólum, svo dæmi séu nefnd. Plataði starfsmenn til að leyfa sér að prófa rafhlaupahjól Er hann til dæmis sakaður um að hafa þann 13. ágúst síðastliðinn farið í ótilgreinda verslun í Reykjavík, framvísað þar ökuskírteini annars manns og blekkt starfsmenn verslunarinnar til að leyfa sér prófa rafmagnshlaupahjól af gerðinni Power Zero 10-x að söluverðmæti 219.995 kr. Hjólinu skilaði hann ekki aftur. Við skýrslutöku hjá lögreglu 13. ágúst kannaðist kærði við atvikið og taldi líklegra en ekki að hann væri sekur um háttsemina, að því er fram kemur í úrskurði Landsréttar. Framvísaði fölsuðu skjáskoti af millifærslu Þá hefur hann einnig játað sök í fjársvikamáli er hann fékk ótilgreindan einstakling til að afhenda sér hlaupahjól að verðmæti 45 þúsund krónur. Þóttust hann og samverkamaður hans hafa greitt fyrir með því að sýna falsað skjáskot af millifærslu fyrir viðskiptunum en greiðslan barst ekki inn á reikning tjónþola. Er það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að maðurinn muni halda áfram brotum gangi hann laus, nauðsynlegt sé að ljúka þeim málum sem séu til meðferðar hjá ákæruvaldi og lögreglu sem fyrst. Kemur einnig fram að maðurinn eigi að baki langan sakaferil, meðal annars fyrir auðgunarbrot sem hafa ítrekunaráhrif til refsiþyngingar á þau brot sem nú eru til rannsóknar. Héraðsdómur úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald til 4. nóvember og Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms á föstudaginn.
Dómsmál Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira