„Ekki það sem við vildum en það sem við fengum“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. mars 2023 23:31 Klopp þurfti að játa sig sigraðan. Jose Breton/Getty Images Það var ekki bjart yfir Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool, þegar hann mætti í viðtal eftir 1-0 tap sinna manna á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd. Eftir að hafa tapað 5-2 á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu var brekkan brött fyrir drengina frá Bítlaborginni. „
Að vera 5-2 er augljóslega ekki frábært ef þú ætlar þér að komast áfram. Þú þarft að eiga einstaka frammistöðu og við gátum það ekki í kvöld. Real Madríd fékk betri færi og Alisson varði í tvígang meistaralega,“ sagði Klopp eftir leik. Inspired from Alisson #UCL pic.twitter.com/ywk4JhZSJy— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) March 15, 2023 „Rétta liðið fór áfram, við verðum að viðurkenna það. Útsláttarkeppnir eru svona, þetta er ekki það sem við vildum en það sem við fengum.“ „Þú þarft augnablik í leikjum sem þessum, hefðum við skorað í fyrri hálfleik hefði það mögulega kveikt einhvern neista. Þetta er þó allt bara ef og hefði. Þeir voru betra liðið í þremur hálfleikjum einvígisins og það er þannig sem þú kemst áfram,“ bætti Klopp við en Liverpool komst í 2-0 á Anfield áður en liðið tapaði 2-5. „Ef við hefðum náð í jafntefli á heimavelli og hefðum svo spilað eins og við gerðum í kvöld þá hefðum við líklega einnig fallið úr leik. Við getum ekki komið hingað og vonast til að fá eitthvað. Við undirbjuggum okkur fyrir einstaka frammistöðu en það gerðist ekki.“ Real Madríd er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu ásamt Napolí, Chelsea, Manchester City, Inter Milan, AC Milan, Bayern München og Benfica.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Fótbolti „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Formúla 1 Fleiri fréttir Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjáðu frábært mark hjá Arnóri Ingva sem dugði þó skammt Langt hlé gert á leik hjá Guðrúnu vegna mikillar rigningar Jón Dagur lagði upp mark Birkir skoraði fyrir Brescia Katla tryggði Kristianstad sigur Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Sjá meira