Eiríkur Bergmann: Flokkur fólksins „á rífandi siglingu“ Þorgils Jónsson skrifar 25. september 2021 23:26 Inga Sæland og Flokkur fólksins hafa fengið fljúgandi start í fyrstu tölum kvöldsins. Miðað við fyrstu tölur er Flokkur fólksins að bæta verulega við sig. Eiríkur Bergmann segir flokkkinn á „rífandi siglingu“ og Ingu Sæland stefna í að verða eina af stærstu stjörnum stjórnmálanna.
Miðað við fyrstu tölur og með þeim fyrirvörum sem fylgja, er Flokkur fólksins með 11,7% á landsvísu, og átta þingmenn. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur sagði í samtali við Heimi Má Pétursson á kosningavöku Stöðvar 2 að af þessum tölum að ráða væri flokkurinn, og Inga Sæland formaður hans, farinn að gera sig gildandi á stjórmálasviðinu. Heimir spurði hvor verið gæti að Flokkur fólksins gæti orðið lím í ríkisstjórn, hugsanlega bjargað Reykjavíkurmódelinu svokallaða með Samfylkingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri Grænum. „Hafi fólk haft áhyggjur af því að Flokkur fólksins væri einhverskonar utangarðsmenn í íslenskum stjórnmálum sem væru ekki taldir stjórntækir, hefur Inga Sæland afsannað það á þessu kjörtímabili með framgöngu sinni,“ sagði Eiríkur. „Og ef fram fer sem horfir er hún orðin ein af stærstu stjörnum íslenskra stjórnmála.“ Hann bætti því við að Inga virtist eiga gott samstarf við aðra stjórnmálaleiðtoga. „Hún er enginn utangarðsmaður.“ Klippa: Inga Sæland í gleðivímu: Ég er komin til að sjá og sigra, Sigurjón digra Inga sagðist sjálf bjartsýn á niðurstöður kosninganna, í samtali við fréttastofu á kosningavöku Flokks fólksins í Grafarvogskirkju. „Mér líður bara yndislega, ég vaknaði með spennufiðring í maganum í morgun og hann er búinn að haldast allan daginn. Ég segi bara að bjartsýni og bros ríki hér í herbúðum Flokks fólksins,“ sagði Inga fyrir stuttu. Hún segist hafa fundið fyrir miklum meðbyr undanfarið. „Alveg ótrúlegum, þetta er alveg gjörólíkt því sem var fyrir fjórum árum síðan. Það er engu líoku saman að jafna. Þannig að við getum ekki annað en verið bjartsýn og við bíðum bara alveg ótrúlega spennt.“ Gríðarleg fylgisaukning hefur verið hjá flokknum undanfarna daga. Hvað heldur Inga að skýri þá aukningu? „Ég held bara að við séum að ná í gegn og fólk skilji það að við meinum það sem við segjum og kannski líka hugsanlega hafa kynnt sér störfin okkar í þinginu því við erum að leggja þau í dóm kjósenda.“ Klippa: Inga Sæland: Ég er í skýjunum
Alþingi Flokkur fólksins Alþingiskosningar 2021 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira