Skoraði sjö mörk í undanúrslitunum

Óðinn Þór Ríkharðsson
Óðinn Þór Ríkharðsson Ljósmynd/Kadetten

Óðinn Þór Ríkharðsson, hornamaður Kadetten Schaffhausen og íslenska landsliðsins, skoraði 7 mörk úr 9 skotum í sigri liðsins gegn Pfadi Winterthur í undanúrslitum svissnesku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Markahrókurinn Óðinn var í aðalhlutverki þegar Kadetten komst í 1:0 forystu í einvíginu á heimavelli. Liðin mætast á nýjan leik á þriðjudaginn en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í úrslitarimmuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert