Alríkislögreglan leitar að unnusta Petito Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. september 2021 23:00 Alríkislögreglan leitar nú Brian Laundrie, unnusta Gabrielle Petito sem fannst myrt í þjóðgarði í Wyoming. Getty/Octavio Jones Alríkislögregla Bandaríkjanna hefur óskað eftir aðstoð almennings til að finna unnusta hinnar 22 ára gömlu Gabrielle Petito, sem fannst myrt í þjóðgarði í Wyoming á dögunum. Dánardómstjóri skar um það í gær að Petito hafi verið ráðinn bani.
Gabrielle „Gabby“ Petito hafði verið á ferðalagi með unnusta sínum, Brian Laundrie, í breyttum sendiferðabíl þegar hún hvarf í ágúst. Laundrie sneri svo einn heim úr ferðinni í byrjun september og neitaði að segja fjölskyldu Petito og lögreglu hvað hafði orðið um hana. Laundrie hefur verið saknað síðan á þriðjudaginn í síðustu viku. Laundrie ber ekki stöðu grunaðs í málinu en hann er svokölluð „person of interest“ sem þýðir að lögregla vilji ná af honum tali vegna rannsóknar málsins. Alríkislögreglan sagði í yfirlýsingu í dag að hún óskaði upplýsingum frá fólki sem gæti hafa hitt eða orðið vart við Petito eða Laundrie. Þá hafa þeir sem voru staddir á Spread Creek tjaldsvæðinu í Bridger-Teton þjóðgarðinum í lok ágúst verið beðnir að hafa samband við Alríkislögregluna. Sama gildi um fólk sem gæti hafa séð sendiferðabílinn þeirra. Leit að Laundrie stendur nú yfir á Carlton náttúruverndarsvæðinu í Flórída en ekkert hefur enn fundist. Foreldrar Laundries greindu yfirvöldum frá því að hann hafi í síðustu viku ýjað að því að hann ætlaði að ganga verndarsvæðið á enda einn. Svæðið er erfitt yfirferðar, enda um 75 prósent undir vatni, það er fenjasvæði. Landverðir munu því aðstoða lögreglu við að kemba svæðið, sem er aðeins í um 20 mínútna fjarlægð frá heimili Laundrie. Lögreglan gerði í byrjun vikunnar leit á heimili Laundrie. Fram kemur í leitarheimildinni, sem var birt í dag, að síðustu skilaboðin sem send voru úr síma Petito til móður hennar, Nicole Schmidt, hafi verið skrítin og að Schmidt hafi verið áhyggjufull eftir að hún las þau. Skilaboðin sögðu: „Geturðu hjálpað Stan, ég fæ endalaus talskilaboð frá honum og hann hringir stanslaust í mig.“ Stan er afi Gabby en móðir hennar segir að hún hafi aldrei kallað hann þessu nafni. Þá greindi lögreglan í Utah frá því að hún hafi þurft að hafa afskipti af parinu þann 12. ágúst. Símhringing sem barst neyðarlínunni í Utah var birt þar sem hringjandinn segir frá því að hann hafi orði vitni að pari í hávaðarifrildi. Hann hafi séð manninn, Laundrie, slá konuna, Petito. Hægt er að hlusta á símtalið í frétt Washington Post. Þegar lögreglan kom á staðinn virtist Petito í miklu uppnámi og grátandi. Lögreglan mat það svo að Petito hafi veist að Laundrie, að hún hafi verið að slá hann, og parið var aðskilið yfir nóttina.
Bandaríkin Erlend sakamál Gabrielle Petito Tengdar fréttir Staðfesta að líkið sé af ungu konunni og að henni hafi verið ráðinn bani Lík sem fannst við þjóðgarð í Wyoming í Bandaríkjunum er af ungri konu sem hvarf þegar hún var á ferðalagi um landið með unnusta sínum í sumar. Dánardómstjóri staðfestir þetta og segir að henni hafi verið ráðinn bani. 22. september 2021 08:25 Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. 21. september 2021 09:54 Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. 20. september 2021 10:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Staðfesta að líkið sé af ungu konunni og að henni hafi verið ráðinn bani Lík sem fannst við þjóðgarð í Wyoming í Bandaríkjunum er af ungri konu sem hvarf þegar hún var á ferðalagi um landið með unnusta sínum í sumar. Dánardómstjóri staðfestir þetta og segir að henni hafi verið ráðinn bani. 22. september 2021 08:25
Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. 21. september 2021 09:54
Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. 20. september 2021 10:21