Lék allan leikinn í tapi gegn Liverpool

Dagný Brynjarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Dagný Brynjarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir var á sínum stað í byrjunarliði West Ham í 2:0-tapi gegn Liverpool í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag.

Ceri Holland og Katie Stengel komu Liverpool í tveggja marka forystu snemma leiks og reyndust það einu mörk leiksins. Dagný lék allan leikinn í liði West Ham.

Eftir níu leiki er West Ham í sjötta sæti deildarinnar með 12 stig. Chelsea er á toppnum með 24 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert