Innlent

Krefjast farbanns yfir lækninum: Fékk ný­verið endur­nýjað tak­markað starfs­leyfi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Læknirinn starfaði við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Læknirinn starfaði við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Vísir/Egill Aðalsteinsson

Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á farbann yfir fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í starfi, sem hafi leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Læknirinn fékk nýverið endurnýjað takmarkað starfsleyfi og starfar á Landspítala. Grunur leikur á að andlát sex sjúklinga mannsins hafi borið að með saknæmum hætti og mál fimm annarra eru einnig í skoðun.

Læknirinn, Skúli Tómas Gunnlaugsson, lét af störfum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að landlæknir hóf athugun á störfum hans í nóvember 2019. Fréttastofa hefur fjallað ítarlega um málið en Skúli Tómas er meðal annars grunaður um að hafa veitt fólk lífslokameðferð að tilefnislausu.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur alfarið neitað að tjá sig um málið en greint var frá því í ágúst að þrír starfsmenn stofnunarinnar hefðu verið kærðir vegna meintrar vanrækslu, Skúli Tómas og tveir aðrir. Í svartri og ítarlegri skýrslu landlæknis vegna málsins eru starfsmennirnir meðal annars sakaðir um mistök, vanrækslu, hirðuleysi og vanvirðingu - með alvarlegum og endurteknum hætti.

Í úrskurði sem féll í Landsrétti í vikunni kemur fram að lögreglan á Suðurnesjum hafi andlát sex sjúklinga Skúla Tómasar til rannsóknar, sem hún telur að borið hafi að með saknæmum hætti. Mál fimm annarra sjúklinga séu til meðferðar. Sjúklingarnir eru því ellefu talsins. Þá hafi fyrrnefndir þrír starfsmenn réttarstöðu sakbornings í málunum.

Landsréttur féllst á kröfu lögreglunnar um að tveir dómkvaddir matsmenn verði fengnir til að svara spurningum í tengslum við andlát einssjúklings, sem er samkvæmt heimildum Dana Kristín Jóhannsdóttir, en hún var 73 ára þegar hún lést. Hún átti að fá hvíldarinnlögn á HSS - en var þess í stað sett á lífslokameðferð og lést nokkrum vikum síðar.

Skúli Tómas hefur undanfarna mánuði verið í endurmenntun á Landspítala en fékk nýverið, samkvæmt heimildum fréttastofu, endurnýjað takmarkað starfsleyfi. Þá herma heimildir fréttastofu að lögreglan á Suðurnesjum hafi farið fram á farbann yfir Skúla Tómasi. Héraðsdómur Reykjaness hafi fallist á farbannið, en að Landsréttur hafi snúið því við og hafnað því.

Spurningarnar sem dómkvöddum matsmönnum er gert að svara eru eftirfarandi:

Hver var dánarorsök A?

Voru til staðar forsendur til að hefja lífslokameðferð á Aþann 1. ágúst 2019 og var verklagi við framkvæmd líknandi/lífslokameðferðar fylgt?

Var lyfjagjöf til handa Aeðlileg að teknu tilliti til ástands hennar og sjúkdómsgreiningar frá 1. ágúst til október 2019?

Var rétt staðið að sjúkdómsgreiningum Aog þeim meðferðum sem ákveðnar voru vegna þeirra á árinu 2019?


Tengdar fréttir

Lýsa alvarlegri vanrækslu og kvölum móður sinnar sem lést eftir mistök á HSS

Móðir okkar hefði ekki þurft að deyja, segja dætur konu sem lést í umsjá læknis sem grunaður er um röð mistaka í störfum sínum. Þær segja móður þeirra hafa þurft að þola hræðilegar kvalir, meðal annars vegna sýkinga sem hafi verið illa meðhöndlaðar. Læknirinn er grunaður um að hafa sett konuna í lífslokameðferð að óþörfu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×