Tónlist

Adele sendir frá sér glænýtt tónlistarmyndband

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Adele bregður sér í hlutverk Mjallhvítar en hlýtur þó önnur örlög
Adele bregður sér í hlutverk Mjallhvítar en hlýtur þó önnur örlög Instagram: @adele

Breska stórstjarnan Adele var rétt í þessu að gefa út tónlistarmyndband við lagið sitt Oh my God.

Lagið er að finna á plötunni 30 sem kom út í nóvember síðastliðnum en platan hefur náð gríðarlegum árangri á heimsvísu.

Undanfarna daga hefur Adele deilt svokölluðum tíserum úr myndbandinu og hefur meðal annars deilt tveimur bútum á Instagram síðu sinni sem lofuðu heldur betur góðu.

Myndbandið er sannkallað listaverk, stútfullt af fjölbreyttum listmiðlum sem sameinast í stórkostlega heild. Leikstjóri listaverksins er Sam Brown en hann og Adele unnu meðal annars saman að tónlistarmyndbandi við lagið Rolling in The Deep árið 2011.

Í Oh My God syngur Adele meðal annars um að þó það sé rangt þá langi hana bara að hafa gaman og það leynir sér ekki að hún nýtur sín í botn í þessu myndbandi. Í upphafi myndbandsins kemur Adele fram fjölfölduð og má þar sjá hennar eina keppinaut, hana sjálfa.

Myndbandið er í svart hvítu allan tímann og atburðarásin á sér stað á sviði, eins og í leiksýningu eða á sirkus. Adele skartar sannkölluðu Hollywood stjörnu lúkki þar sem hún klæðist meðal annars kjól eftir bresku tísku goðsögnina og ofurtöffarann Vivienne Westwood. 

Myndbandið veitir innsýn inn í heim sviðslista og ásamt Adele koma fram fjölbreyttur hópur dansara, fimleikafólk, breikarar, snákur, tignarlegur hestur og fleira til. Við sjáum eldheitan dans eiga sér stað stundarkorn á gólfdýnu og bókstaflegan eld bregða fyrir þar sem kveikt er í stól á sviðinu.

Adele virðist sjálfsörugg og með öllu óhrædd þar sem hún leikur eftir atriði úr hinni frægu sögu af Mjallhvíti. Hún heldur á epli og starir á það þangað til hún kýlir á það og fær sér bita. Ekkert slæmt gerist heldur stendur hún einfaldlega upp og gengur út úr rammanum. Hún er í fullri stjórn yfir sjálfri sér og sínu lífi og heldur áfram að njóta þess að vera til á sinn stórkostlega og einstaka hátt. 

Það er margt spennandi framundan hjá þessari drottningu en hún er meðal annars að fara af stað með tónleikaröð í Las Vegas fram í apríl. 

Sjón er sögu ríkari en hér má sjá myndbandið í heild sinni:


Tengdar fréttir

Adele svarar 73 spurningum

Söngkonan Adele tók á dögunum þátt í reglulegum lið á YouTube-síðu tímaritsins Vogue.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×