Miðar ruku út á úrslitaleik Íslands og Ungverjalands Sindri Sverrisson skrifar 30. október 2020 15:31 Ísland komst í úrslitaleikinn með því að vinna Rúmeníu í undanúrslitum snemma í þessum mánuði. Ungverjaland vann Búlgaríu á sama tíma. vísir/vilhelm Ljóst er að ungverskir stuðningsmenn ætla ekki að láta sitt eftir liggja þegar Ungverjaland og Ísland mætast í úrslitaleiknum um sæti á EM, í Búdapest eftir 13 daga. Á fyrsta klukkutímanum eftir að miðasala opnaði seldust 6.000 miðar, samkvæmt ungverska knattspyrnusambandinu. Miðasalan er aðeins opin fyrir meðlimi í stuðningsmannafélagi landsliðsins og aðeins hægt að kaupa miða sem gildir á alla þrjá leikina sem framundan eru hjá Ungverjum. Eftir leikinn við Ísland mæta þeir Serbíu og Tyrklandi í Þjóðadeildinni. Á mánudaginn hefst almenn miðasala, ef ekki verður þegar orðið uppselt í þau 20 þúsund sæti sem í boði eru á Puskás Arena að þessu sinni. Þá verður hægt að kaupa miða á staka leiki. Uppselt er nú þegar í þau sæti sem ódýrust eru á vellinum. Engir miðar fyrir íslenska stuðningsmenn UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, tilkynnti fyrir mánuði síðan að áhorfendabanni á landsleikjum hefði verið aflétt að hluta. Bannið var sett á vegna kórónuveirufaraldursins. Samkvæmt nýju reglunum má selja miða í þriðjung þess sætafjölda sem er á hverjum leikvangi, en Puskás Arena rúmar yfir 60 þúsund manns. Samkvæmt sömu reglum fá stuðningsmenn gestaliðs ekki úthlutað miðum á leiki, en vanalega hafa gestaþjóðir fengið að kaupa 10% þeirra miða sem í boði eru á landsleikjum. „Við sjáum á áhuganum og eftirspurninni að stuðningsmennirnir vilja ólmir hjálpa landsliðinu í þessum heimaleikjum. Stuðningsmennirnir vilja vera á staðnum og vonast til að saman tryggjum við okkur sæti á EM,“ sagði Jeno Sipos talsmaður ungverska knattspyrnusambandsins. Liðið sem vinnur leikinn mun leika tvo leiki á Puskás Arena næsta sumar, í lokakeppni EM, gegn Portúgal og Frakklandi. Síðasti leikurinn í riðlinum verður gegn Þýskalandi í München. Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2. EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Tengdar fréttir Kálfinn angrar Jóhann Berg þegar stutt er í úrslitaleikinn við Ungverja Óvíst er að Jóhann Berg Guðmundsson geti leikið með Burnley gegn Chelsea um helgina vegna kálfameiðsla, nú þegar sléttar tvær vikur eru í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um sæti á EM í fótbolta. 29. október 2020 16:31 Ungverska ungstirnið sem Íslendingar mæta með draumamark í gær Íslendingar þurfa að hafa góðar gætur á Dominik Szoboszlai í leiknum gegn Ungverjum um sæti á EM 12. nóvember. 22. október 2020 16:00 Þjálfari Ungverja er ekki hræddur við leikinn gegn Íslandi Marco Rossi, þjálfari ungverska landsliðsins í knattspyrnu, segir íslenska liðið engu betra en Serbíu eða Rússland. Tvö lönd sem Ungverjar mættu í æfingaleikjum nýverið. 17. október 2020 12:31 Allt í blóma hjá Ungverjum eftir sögulega þynnku Ungverjar hafa farið í gegnum rússíbanareið frá því að þeir mættu Íslendingum á EM 2016. Liðin mætast í úrslitaleik um sæti á EM, í Búdapest 12. nóvember. 15. október 2020 13:30 Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira
Ljóst er að ungverskir stuðningsmenn ætla ekki að láta sitt eftir liggja þegar Ungverjaland og Ísland mætast í úrslitaleiknum um sæti á EM, í Búdapest eftir 13 daga. Á fyrsta klukkutímanum eftir að miðasala opnaði seldust 6.000 miðar, samkvæmt ungverska knattspyrnusambandinu. Miðasalan er aðeins opin fyrir meðlimi í stuðningsmannafélagi landsliðsins og aðeins hægt að kaupa miða sem gildir á alla þrjá leikina sem framundan eru hjá Ungverjum. Eftir leikinn við Ísland mæta þeir Serbíu og Tyrklandi í Þjóðadeildinni. Á mánudaginn hefst almenn miðasala, ef ekki verður þegar orðið uppselt í þau 20 þúsund sæti sem í boði eru á Puskás Arena að þessu sinni. Þá verður hægt að kaupa miða á staka leiki. Uppselt er nú þegar í þau sæti sem ódýrust eru á vellinum. Engir miðar fyrir íslenska stuðningsmenn UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, tilkynnti fyrir mánuði síðan að áhorfendabanni á landsleikjum hefði verið aflétt að hluta. Bannið var sett á vegna kórónuveirufaraldursins. Samkvæmt nýju reglunum má selja miða í þriðjung þess sætafjölda sem er á hverjum leikvangi, en Puskás Arena rúmar yfir 60 þúsund manns. Samkvæmt sömu reglum fá stuðningsmenn gestaliðs ekki úthlutað miðum á leiki, en vanalega hafa gestaþjóðir fengið að kaupa 10% þeirra miða sem í boði eru á landsleikjum. „Við sjáum á áhuganum og eftirspurninni að stuðningsmennirnir vilja ólmir hjálpa landsliðinu í þessum heimaleikjum. Stuðningsmennirnir vilja vera á staðnum og vonast til að saman tryggjum við okkur sæti á EM,“ sagði Jeno Sipos talsmaður ungverska knattspyrnusambandsins. Liðið sem vinnur leikinn mun leika tvo leiki á Puskás Arena næsta sumar, í lokakeppni EM, gegn Portúgal og Frakklandi. Síðasti leikurinn í riðlinum verður gegn Þýskalandi í München. Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2.
Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Tengdar fréttir Kálfinn angrar Jóhann Berg þegar stutt er í úrslitaleikinn við Ungverja Óvíst er að Jóhann Berg Guðmundsson geti leikið með Burnley gegn Chelsea um helgina vegna kálfameiðsla, nú þegar sléttar tvær vikur eru í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um sæti á EM í fótbolta. 29. október 2020 16:31 Ungverska ungstirnið sem Íslendingar mæta með draumamark í gær Íslendingar þurfa að hafa góðar gætur á Dominik Szoboszlai í leiknum gegn Ungverjum um sæti á EM 12. nóvember. 22. október 2020 16:00 Þjálfari Ungverja er ekki hræddur við leikinn gegn Íslandi Marco Rossi, þjálfari ungverska landsliðsins í knattspyrnu, segir íslenska liðið engu betra en Serbíu eða Rússland. Tvö lönd sem Ungverjar mættu í æfingaleikjum nýverið. 17. október 2020 12:31 Allt í blóma hjá Ungverjum eftir sögulega þynnku Ungverjar hafa farið í gegnum rússíbanareið frá því að þeir mættu Íslendingum á EM 2016. Liðin mætast í úrslitaleik um sæti á EM, í Búdapest 12. nóvember. 15. október 2020 13:30 Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira
Kálfinn angrar Jóhann Berg þegar stutt er í úrslitaleikinn við Ungverja Óvíst er að Jóhann Berg Guðmundsson geti leikið með Burnley gegn Chelsea um helgina vegna kálfameiðsla, nú þegar sléttar tvær vikur eru í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um sæti á EM í fótbolta. 29. október 2020 16:31
Ungverska ungstirnið sem Íslendingar mæta með draumamark í gær Íslendingar þurfa að hafa góðar gætur á Dominik Szoboszlai í leiknum gegn Ungverjum um sæti á EM 12. nóvember. 22. október 2020 16:00
Þjálfari Ungverja er ekki hræddur við leikinn gegn Íslandi Marco Rossi, þjálfari ungverska landsliðsins í knattspyrnu, segir íslenska liðið engu betra en Serbíu eða Rússland. Tvö lönd sem Ungverjar mættu í æfingaleikjum nýverið. 17. október 2020 12:31
Allt í blóma hjá Ungverjum eftir sögulega þynnku Ungverjar hafa farið í gegnum rússíbanareið frá því að þeir mættu Íslendingum á EM 2016. Liðin mætast í úrslitaleik um sæti á EM, í Búdapest 12. nóvember. 15. október 2020 13:30