Minnsti útlánavöxturinn frá upphafi faraldurs

Ásókn heimila og fyrirtækja í ný bankalán umfram uppgreiðslur hefur dregist saman á síðustu mánuðum eftir að hafa aukist hratt árið 2020. Ný útlán bankakerfisins eru nú þau sömu og þau voru fyrir faraldurinn, en samsetning þeirra hefur breyst töluvert.

Ný útlán til byggingargeirans hafa tekið við sér á síðustu mánuðum.
Ný útlán til byggingargeirans hafa tekið við sér á síðustu mánuðum.
Auglýsing

Ný útlán banka­kerf­is­ins umfram upp­greiðslur námu 14,3 millj­örðum króna í des­em­ber og hefur sú tala ekki verið jafn­lítil síðan í jan­úar 2020. Þó er sam­setn­ingin á útlán­unum tölu­vert frá­brugðin því sem hún var fyrir far­ald­ur­inn, þar sem heim­ili skuld­setja sig nú mun meira heldur en fyr­ir­tæki. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­bank­ans um banka­kerfið.

Nýjum hús­næð­is- og fyr­ir­tækja­lánum fækkar

Sam­kvæmt töl­unum juk­ust ný nettó útlán til heim­ila um 23,6 millj­arða króna í des­em­ber. Líkt og sést á mynd hér að neðan var þetta minnsta aukn­ingin í nýjum útlánum heim­ila á árinu, en hún var mest í júní þegar skuld­setn­ing þeirra jókst um 40,2 millj­arða króna.

Hins vegar er ásókn heim­ila í banka­lán þó enn mun meiri en hún var fyrir far­ald­ur­inn, en ný útlán þeirra umfram upp­greiðslur voru um helm­ingi minni á fyrstu mán­uðum árs­ins 2020.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Seðlabankinn.

Hjá fyr­ir­tækjum er þetta öfugt far­ið, en þar byrj­aði umfang nýrra nettó útlána að drag­ast saman á seinni hluta árs 2019. Þessi sam­dráttur hélt svo áfram í kjöl­far far­ald­urs­ins, en um mitt árið 2020 voru upp­greiðslur gam­alla lána meiri en aukin skuld­setn­ing fjóra mán­uði í röð.

Á fyrstu mán­uðum árs­ins 2021 fóru svo ný fyr­ir­tækja­lán að aukast aft­ur, en sú þróun sner­ist svo við á haust­mán­uðum í fyrra. Frá ágúst til des­em­ber minnk­aði skuld­setn­ing fyr­ir­tækja í banka­kerf­inu um 11,3 millj­arða króna, en minnkunin nam 3,8 millj­örðum króna í des­em­ber.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir snúa aftur

Líkt og Kjarn­inn hefur áður fjallað um hefur hlut­deild líf­eyr­is­sjóða á íbúða­lána­mark­aðnum auk­ist sam­hliða minni ásókn í ný lán hjá bönk­un­um, en útlán sjóð­anna til heim­ila juk­ust um 7,6 millj­arða króna í nóv­em­ber. Þetta gerð­ist á sama tíma og þrír sjóðir fóru að bjóða upp á óverð­tryggð hús­næð­is­lán á svip­uðum kjörum og buð­ust hjá við­skipta­bönk­un­um.

Auglýsing

Nóv­em­ber var fyrsti mán­uð­ur­inn þar sem heild­ar­virði nýrra lána hjá líf­eyr­is­sjóð­unum var meira en upp­greiðslur frá því í maí árið 2020, þegar ásóknin í hús­næð­is­lán stórjókst hjá bönk­un­um.

Teikn um aukna íbúða­upp­bygg­ingu

Þrátt fyrir að heilt yfir hafi dregið úr útlánum banka til fyr­ir­tækja má sjá merki um við­snún­ing í lán­töku í nokkrum geir­um. Ný útlán til fyr­ir­tækja vegna hús­næð­is- og mann­virkja­gerðar juk­ust um 3,1 millj­arð króna í des­em­ber síð­ast­liðn­um, en þau voru einnig jákvæð um 2,4 millj­arða króna í nóv­em­ber. Þetta er í fyrsta skiptið sem ný útlán til hús­næð­is­upp­bygg­ingar hafa auk­ist tvo mán­uði í röð frá upp­hafi far­ald­urs­ins, en þau hafa verið afar lítil frá seinni hluta árs 2019.

Virði útlána íslensku bank­anna til bygg­ing­ar­starf­semi minnk­aði um tugi millj­arða króna í fyrra. Sam­kvæmt Íslands­banka er minnkunin ekki til­komin vegna þess að bank­inn hafi verið að hafna verk­efn­um. Hins vegar hafi eft­ir­spurnin eftir lánum í bygg­ing­ar­geir­anum minnk­að, auk þess sem upp­greiðsla bygg­ing­ar­verk­taka sem hafa tekið slík lán orðið hrað­ari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent