Unnusta Khashoggi biður Bieber að hætta við tónleika í Sádi-Arabíu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. nóvember 2021 10:28 „Það er ekki of seint að biðjast afsökunar. Ekki syngja fyrir einræðisherra Sádi-Arabíu,“ segir á einni auglýsingu sem er til sýnis í Los Angeles, borginni sem Justin Bieber býr í. Getty/ Jerod Harris Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði.
Bieber er einn nokkurra vel þekktra tónistarmanna, sem mun skemmta gestum Formúlu eitt á fyrsta kappakstrinum, sem haldinn er í Jeddah. Cengiz hefur birt opið bréf, sem stílað er á Bieber, og beðið hann að senda valdamönnum konungsríkisins skilaboð og hætta við framkomuna. Hatice Cengiz hefur kallað eftir því að Justin Bieber hætti við framkomu á tónleikum í Sádi-Arabíu.Getty/Andreas Rentz Khashoggi, sem lengi var hávær gagnrýnandi konungsstjórnarinnar, var myrtur hrottalega í sádiarabíska sendiráðinu í Istanbúl í Tyrklandi í oktober 2018. Hann hafði farið í sendiráðið til þess að sækja nauðsynlega pappíra fyrir hjónavíxlu hans og Cengiz. Hann var myrtur og lík hans bútað niður inni í sendiráðinu á meðan Cengiz beið fyrir utan. „Ekki syngja fyrir morðingja míns heittelskaða Jamals,“ skrifaði Cengiz í bréfinu, sem birtist hjá Washington Post. Hún skrifar í bréfinu að Bieber sé í góðri stöðu til að sýna að hann styðji ekki við stjórnvöld sem komi gagnrýnendum sínum fyrir kattarnef. Kappaksturinn fer fram í borginni Jeddah þann 5. desember næstkomandi. Fjöldi þekktra tónlistarmanna mun þar stíga á stokk auk Biebers, eins og A$AP Rocky, David Guetta og Jason Derulo. Cengiz er ekki ein um ákallið. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa hvatt Bieber og hina listamennina um að hætta við framkomuna, sem þau segja tilraun sádiarabískra stjórnvalda til að beina athygli frá mannréttindabrotum þeirra. Nokkrir auglýsingabílar aka nú um götur Los Angeles með skilaboð til Justins Bieber. „Hvers vegna syngur Bieber fyrir sádískan einræðisherra sem tekur samkynhneigða menn af lífi?“ stendur á einni auglýsingunni.Getty/Jerod Harris Khashoggi, sem var 59 ára gamall þegar hann var myrtur, var eitt sinn einn helsti ráðgjafi sádiarabískra stjórnvalda og náinn konungsfjölskyldunni. Það breyttist hins vegar skyndilega og hann flúði til Bandararíkjanna árið 2017. Rannsókn bandarísku leyniþjónustunnar á morðinu leiddi í ljós að Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, hafi fyrirskipað morðið. Hann hefur þó ítrekað neitað allri aðkomu að morðinu.
Sádi-Arabía Tónlist Morðið á Khashoggi Hollywood Tengdar fréttir Unnusta Khashoggi „harmi lostin“ vegna yfirtöku Sáda á Newcastle Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi, segist harmi lostin vegna yfirtöku Sádi-Araba á enska knattspyrnuliðinu Newcastle. Útsendarar krónprins konungsríkisins myrtu Khashoggi og bútuðu niður lík hans fyrir þremur árum. 8. október 2021 11:30 Grípa til refsiaðgerða en ekki gegn krónprinsinum sjálfum Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa bannað fjölda einstaklinga frá Sádi Arabíu að ferðast til Bandaríkjanna og íhuga að endurskoða vopnasölu til ríkisins. Bandaríkjamenn birtu í gær skýrslu þar sem fram kemur að krónprinsinn Mohammed bin Salman hafi fyrirskipað morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi. 27. febrúar 2021 10:20 Hringurinn þrengist: Fingraför krónprinsins á vélunum sem fluttu morðingjana Tvær einkaþotur sem morðingjar blaðamannsins Jamal Khashoggi notuðu til að komast aftur til Riyadh voru í eigu félags sem Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, yfirtók aðeins ári áður. 24. febrúar 2021 23:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Fleiri fréttir Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Sjá meira
Unnusta Khashoggi „harmi lostin“ vegna yfirtöku Sáda á Newcastle Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi, segist harmi lostin vegna yfirtöku Sádi-Araba á enska knattspyrnuliðinu Newcastle. Útsendarar krónprins konungsríkisins myrtu Khashoggi og bútuðu niður lík hans fyrir þremur árum. 8. október 2021 11:30
Grípa til refsiaðgerða en ekki gegn krónprinsinum sjálfum Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa bannað fjölda einstaklinga frá Sádi Arabíu að ferðast til Bandaríkjanna og íhuga að endurskoða vopnasölu til ríkisins. Bandaríkjamenn birtu í gær skýrslu þar sem fram kemur að krónprinsinn Mohammed bin Salman hafi fyrirskipað morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi. 27. febrúar 2021 10:20
Hringurinn þrengist: Fingraför krónprinsins á vélunum sem fluttu morðingjana Tvær einkaþotur sem morðingjar blaðamannsins Jamal Khashoggi notuðu til að komast aftur til Riyadh voru í eigu félags sem Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, yfirtók aðeins ári áður. 24. febrúar 2021 23:33