Ekkert pláss fyrir Bale og Rodriguez í Meistaradeildarhóp Real Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. ágúst 2020 07:00 Þessir tveir verða að öllum líkindum ekki í herbúðum Real þegar næsta tímabil hefst. David S. Bustamante/Getty Images
Spænska stórveldið Real Madrid hefur gefið út hvaða 24 leikmenn muni ferðast með liðinu til Portúgal þar sem það mætir Manchester City í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Walesverjinn Gareth Bale og Kólumbíumaðurinn James Rodriguez eru ekki þar á meðal. Our 24-man squad for the match against @ManCity!#RMUCL | #HalaMadrid pic.twitter.com/ybR3uqQDyP— Real Madrid C.F. (@realmadriden) August 5, 2020 Svo virðist sem dagar Bale séu taldir en mikið hefur verið fjallað um stirt samband hans og Zinedine Zidane, þjálfara liðsins. Bale hefur aðeins leikið 20 leiki á tímabilinu, verið í eilífum vandræðum með meiðsli og þá hefur mikið verið fjallað um áhugaleysi hans. Svo virðist sem Bale hafi meiri áhuga á að spila golf heldur en fótbolta. Það hefur reynst Real þrautin þyngri að losa sig við Bale en hann er talinn vera einn launahæsti leikmaður heims. Nú er hins vegar nær öruggt að Real muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma honum frá félaginu. Zidane hefur neglt síðasta naglann í kistu Bale með því að velja hann ekki í 24 manna leikmannahóp liðsins sem fer til Portúgal. James Rodriguez er annað stórt nafn sem er ekki í hópnum en hann er einnig talinn á förum frá félaginu í sumar. Mögulega til erkifjendanna í Atletico madrid. Eftir að hafa verið á láni hjá þýska liðinu Bayern Munich frá 2017 til 2019 spilaði Kólumbíumaðurinn aðeins 14 leiki með Real í öllum keppnum í vetur. Eina nafnið sem vekur athygli að vanti í 24 manna hóp Real er Mariano Díaz en hann á þó að öllum líkindum enn framtíð fyrir sér hjá félaginu. Hann greindist hins vegar með Covid-19 á dögunum og fer því ekki með liðinu til Portúgal. Real Madrid tapaði 2-1 fyrir Manchester City í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en síðari leikur liðanna fer fram á föstudaginn kemur klukkan 19:00.
Fótbolti Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Sjá meira