Icelandair harmar slysið á Keflavíkurflugvelli Eiður Þór Árnason skrifar 6. desember 2021 17:54 Atvikið átti sér stað að morgni laugardags þegar Hermann Guðmundsson var á leið heim frá Flórída með hópi Íslendinga. Vísir/KMU Icelandair harmar slys sem átti sér stað á laugardag þegar eldri maður féll á flugstæði á Keflavíkurflugvelli á leið úr flugvél félagsins. Icelandair segir að öllum verkferlum hafi verið fylgt í aðdraganda óhappsins en farþegarnir voru að koma frá Orlando í Flórída.
Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá heildsölunni Kemi, greindi frá atvikinu í Bítinu á Bylgjunni í morgun og sagði mikla mildi að eldri maður hafi ekki slasast alvarlega við komuna til landsins. Hálka var í bröttum tröppunum þegar maðurinn féll fram fyrir sig og kallar Hermann eftir meiri þjónustu við farþega við vetraraðstæður. „Okkur þykir mjög leitt að þetta atvik hafi átt sér stað. Við leggjum okkur fram við að tryggja öryggi farþega í gegnum allt ferðalagið og í þeim tilfellum sem notaðir eru stigabílar til að koma fólki frá borði, þá er þeir alltaf skoðaðir fyrir notkun út frá öryggissjónarmiðum, til dæmis með tilliti til bleytu, hálku, snjós eða annarra óhreininda,“ segir í skriflegu svari Icelandair við fyrirspurn fréttastofu. Þetta sé til viðbótar við reglubundið viðhald og þrif. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir jafnframt að búið sé að fara yfir málsatvik og staðfesta að öllum ferlum félagsins hafi verið fylgt í þessu tilfelli. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að starfsfólki Isavia þyki leitt að heyra af þessu slysi. Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Kemi.VÍSIR/VILHELM Verið eins og skautasvell Hermann var farþegi um borð í umræddu flugi og segir aðstæður hafa verið mjög hættulegar. „Fólkið sem er fyrst niður stigann er fólk sem sat fyrir aftan mig og mína konu í vélinni, aldrað fólk sem átti erfitt með gang. Fikrar sig niður stigann. Þetta eru mjög brattir stigar. Tröppurnar eru klæddar með riffluðu áli. Þegar kemst bleyta í þetta verður það fljúgandi hált, eins og skautasvell,“ sagði Hermann í Bítinu á Bylgunni. Hann fylgdist með konunni fikra sig rólega niður stigann, með staf í annarri hendi og ríghaldandi sér í handriðið. „Ég geng rólega á eftir henni og fylgist með. Maðurinn gengur aðeins fyrir framan hana með tvær litlar töskur í hvorri hendi. Þegar hann kemur í næst neðstu tröppuna er þar snjór og bleyta. Skiptir engum toga að hann missir fæturna og fellur með andlitið í jörðina, flatur fram fyrir sig.“ Hermann sagði að það hafi vakið athygli hans að enginn starfsmaður hafi verið til aðstoðar eða til að fylgjast með affermingu vélarinnar. Skömmu síðar hafi bílstjóri á vegum Isavia sem átti að keyra farþegana að flugstöðinni stokkið til og byrjað að hlúa að manninum. „Það er mikil mildi að þessi maður skuli ekki hafa stórslasast við þetta fall. Þetta hefði getað verið banvænt ef því er að skipta,“ bætti Hermann við. Hann gagnrýndi starfsmannahald á Keflavíkurflugvelli og sagði það ekki of mikla kröfu að tveir starfsmenn fylgi hverjum stiga, þurrki tröppurnar og aðstoði eldra fólk niður.
Fréttir af flugi Icelandair Keflavíkurflugvöllur Slysavarnir Tengdar fréttir „Þetta hefði getað verið banvænt ef því er að skipta“ Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá heildsölunni Kemi, segir mikla mildi að eldri maður hafi ekki slasast alvarlega við komuna til Íslands frá Orlando í Flórída. Hann kallar eftir meiri þjónustu við farþega að vetri til sem gangi úr flugvélunum niður brattar tröppur sem geti verið hálar og stórhættulegar. 6. desember 2021 11:12 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Sofa rótt í Grindavík og halda í vonina Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
„Þetta hefði getað verið banvænt ef því er að skipta“ Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá heildsölunni Kemi, segir mikla mildi að eldri maður hafi ekki slasast alvarlega við komuna til Íslands frá Orlando í Flórída. Hann kallar eftir meiri þjónustu við farþega að vetri til sem gangi úr flugvélunum niður brattar tröppur sem geti verið hálar og stórhættulegar. 6. desember 2021 11:12