Fótbolti

Sanchez og Luka­ku sáu til þess að Inter jók for­skot sitt á toppi deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir sáu um mörk Inter í kvöld.
Þessir sáu um mörk Inter í kvöld. EPA-EFE/SERENA CAMPANINI

Alexis Sanchez var óvænt hetja Inter Milan er liðið vann 2-1 sigur á Parma í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld.

Alexis Sanchez og Romelu Lukaku hófu leikinn í fremstu línu hjá lærisveinum Antonio Conte í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik lét framherjaparið heldur betur vita af sér.

Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik kom Sanchez gestunum yfir eftir að Lukaku sendi boltann inn fyrir vörn heimamanna. Aðeins sjö mínútum síðar var staðan orðin 2-0 gestunum í vil. Aftur var það Sanchez og aftur átti Lukaku stoðsendinguna.

Hernani minnkaði muninn fyrir Parma á 71. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 2-1 Inter Milan í vil. Liðið trónir sem fyrr á toppi deildarinnar, nú með sex stiga forystu á nágranna sína í AC Milan. Inter með 59 en Milan með 53.

Parma er á sama tíma í 19. sæti með aðeins 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×