„Liverpool menn verða stressaðir“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2021 08:31 Liverpool menn hópast að Craig Pawson dómara en mörgum finnst að leikmenn Liverpool hafi vælt of mikið undan dómgæslunni á þessari leiktíð. Getty/Robbie Jay Barratt Manchester United getur náð sex stiga forskoti á Liverpool með sigri í toppslag liðanna um helgina og gömul Liverpool kempa segir að leikmenn Liverpool séu nú í svolítið nýrri stöðu miðað við undanfarin misseri.
Graeme Souness, fyrrum fyrirliði og knattspyrnustjóri Lierpool, segir að leikmenn Liverpool verði í fyrsta sinn í langan tíma taugaóstyrkir þegar þeir labba inn á völlinn fyrir stórleikinn á móti Manchester United á sunnudaginn. Leikmenn Ole Gunnar Solskjær hafa unnið níu af síðustu ellefu leikjum sínum og komust upp fyrir Liverpool með sigri í vikunni. Liverpool liðið hefur aftur á móti verið í basli síðan um jólin. „Þegar þú ert topplið þá hefur þú bara áhyggjur af þínu liði. Þannig hefur þetta verið hjá Liverpool undanfarin ár en það hefur verið erfitt fyrir liðið á þessu tímabili. Liverpool liðið er að blása og mása og það er staðreynd. Þeir eru ekki sama lið og ekki með sama stöðugleika. Þeir eru samt í öðru sæti í deildinni,“ sagði Graeme Souness í hlaðvarpsþættinum Pitch to Post sem Sky Sports skrifaði upp úr. Graeme Souness insists Liverpool will be nervous going into a game against Manchester United for the first time in years, but should edge it.— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) January 15, 2021 „Þeir munu hugsa þetta þannig að þó að þeir séu ekki í góðum gír þá eru þeir samt sem áður í öðru sæti deildarinnar og enn með í baráttunni. Ef það er einn leikur sem United vill vinna og einn leikur sem Liverpool vill vinna þá er það þessi leikur. Metingurinn er rosalegur og hefur alltaf verið til staðar. Þetta eru tveir risaklúbbar sem hafa náð miklum árangri,“ sagði Souness. Hafa tapað stigum sem enginn átti von á „Ég held að í fyrsta sinn í langan tíma þá munu Liverpool menn vera stressaðir fyrir leik. Þeir hafa verið lofaðir stanslaust í tvö ár og réttilega því fótbolti liðsins hefur verið stórkostlegur. Hann er ekki í sama klassa á þessu tímabili og þá sérstaklega hvað varðar stöðugleikann. Þessa vegna hafa þeir tapað stigum sem enginn átti von á að þeir gerðu,“ sagði Souness. „Þegar þeir eru upp á sitt besta þá hrella þeir mótherjanna ekki síst framarlega á vellinum. Ég hef ekki séð reglulega á þessu tímabili. United mætir líka í þennan leik sem hópur manna sem telja sig geta náð í úrslit. Takist það hjá þeim þá komast þeir á enn meira skrið,“ sagði Souness. SUNDAY: Liverpool Manchester United pic.twitter.com/m2fcfsDxOY— Goal (@goal) January 12, 2021 Uppkoma Manchester United á þessu tímabili hefur komið Graeme Souness á óvart. „Ef þú hefðir sagt við mig í byrjun tímabilsins að United væri að fara að mæta Liverpool á þessum tíma, þremur stigum á undan, þá hefði ég svarað að það væri ekki að fara að gerast. Við erum stödd á einu óvenjulegasta tímabilinu sem ég man eftir. United liðið á samt skilið hrós því þeir hafa sýnt ákveðni og þrautseigju og með því tekist að skríða aftur inn í titilbaráttuna,“ sagði Souness. Ekki hægt að finna betri tíma „United er að fara á Anfield á góðum tíma og líklega er ekki hægt að finna betri tíma fyrir þá. Liverpool er að leita að stöðugleika sem þeir hafa búið að undanfarin þrjú ár og er ástæðan fyrir því að þeir hafa unnið alla þessa titla,“ sagði Souness en hvernig fer leikurinn? „United mun ógna Liverpool og þessi leikur fer fram á áhorfendalausum Anfield. Liverpool fær því ekki þennan vanalega stuðning í leiknum. Það er erfitt að spá fyrir um úrslitin en ég trúi því samt að Liverpool liðið mæti öflugt í þennan leik. Allison á eftir að eiga góðan dag, fjögurra manna varnarlínan mun halda vel og Liverpool liðið verður aðeins of sterkt fyrir United,“ sagði Graeme Souness en það má finna allan pistil hans hér.
Enski boltinn Mest lesið Aðalsteinsdóttir nafnið á nýrri æfingu Sport Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Di María ákveðinn að snúa ekki aftur heim eftir morðhótanir Fótbolti „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Körfubolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Kalla eftir því að brjóstahaldararnir séu teknir alvarlega Sport Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Íslenski boltinn Mikil spenna fyrir Bakgarðshlaupinu um helgina Sport Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn „Sumir eru bara asnar og láta eins og fávitar“ Sport Fleiri fréttir Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Sjá meira
Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Íslenski boltinn
Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Íslenski boltinn