Ítalska knattspyrnufélagið Juventus staðfesti í dag að ítalski landsliðsmaðurinn Federico Chiesa hefði slitið krossband í hné í leiknum gegn Roma í A-deildinni í gærkvöld.
Hann muni gangast undir uppskurð á næstu dögum en þetta þýðir að Chiesa verður að óbreyttu frá keppni langt fram á haustið, jafnvel til næstu áramóta.
Chiesa var í stóru hlutverki hjá ítalska landsliðinu sem varð Evrópumeistari síðasta sumar. Hann hefur verið í láni hjá Juventus frá Fiorentina frá því í október 2020 en lánssamningurinn á að gilda til næsta hausts.