Vésteinn nýr afreksstjóri ÍSÍ

Vésteinn Hafsteinsson.
Vésteinn Hafsteinsson. Mbl.is/Ívar Benediktsson

Vésteinn Hafsteinsson er nýr afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Hann mun samhliða starfinu leiða nýjan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks. Tilkynnt var um þetta á blaðamannafundi í Gautaborg í Svíþjóð fyrir stundu.

Þá skrifaði ÍSÍ undir samstarfssamning við Mennta- og barnamálaráðuneytið um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Markmiðið er að umgjörð afreksíþróttastarfs verði eins og best verður á kosið þannig að afreksíþróttafólk okkar standi jafnfætis keppinautum sínum á alþjóðavísu.

Vésteinn þekkir vel til þarf afreksíþróttafólks, bæði sem þjálfari og fyrrverandi kringlukastari í fremstu röð. Hann var valinn þjálfari ársins í Svíþjóð eftir að lærisveinar hans Daniel Ståhl og Simon Pettersson unnu gull og silfur á Ólympíuleikunum í Tókýó árið 2021. Hann hefur komið að fjölbreyttu íþróttastarfi í gegnum tíðina og þekkir umhverfið og fólkið vel.

Vésteinn hefur starfað víða erlendis og er í dag starfandi hjá sænsku Ólympíunefndinni, en öll hans reynsla mun nýtast í nýju starfi á Íslandi. Vésteinn er ráðinn til næstu fimm ára til að leiða umbótastarfið og fylgja eftir breytingartillögum starfshópsins í samvinnu við ráðuneytið og ÍSÍ.

Vésteinn ásamt Daniel Ståhl og Simon Pettersson.
Vésteinn ásamt Daniel Ståhl og Simon Pettersson. Ljósmynd/Bildbyrån Joel Marklund

Samkvæmt tilkynningu frá ÍSÍ er starfshópi ráðuneytisins ætlað að yfirfara og leggja til breytingar á umgjörð, löggjöf og öðru sem þurfa þykir til að stuðningur við afreksíþróttafólk hér á landi verði í fremstu röð. Honum er falið að skoða sérstaklega kostnaðarþátttöku keppenda og fjölskyldna þeirra í landsliðsstarfi og lýðréttindi afreksíþróttafólks innan almannatryggingakerfisins.

Starfshópurinn er skipaður fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytisins, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins auk fulltrúa íþróttahreyfingarinnar og annarra haghafa. Stefnt er að því að hann ljúki störfum og skili ráðherra tillögum að breytingum fyrir 1. september nk.

Starf Afreksstjóra ÍSÍ felur í sér umsjón með Afreksstefnu ÍSÍ og ráðgjöf varðandi afreksstefnur sérsambanda ÍSÍ. Afreksstjóri ÍSÍ mun meðal annars vinna að framgangi Afreksíþróttamiðstöðvar ÍSÍ, undirbúningi íslenskra keppenda fyrir ólympíska viðburði og að markmiðasetningu í íslensku afreksíþróttastarfi til næstu ára.

Vésteinn Hafsteinsson þjálfaði eistneska kringlukastarann Gerd Kanter til sigurs á …
Vésteinn Hafsteinsson þjálfaði eistneska kringlukastarann Gerd Kanter til sigurs á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Ljósmynd/Brynjar Gauti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert