Sigurður og Sara meistarar

Sara Kristinsdóttir og Sigurður Arnar Garðarsson.
Sara Kristinsdóttir og Sigurður Arnar Garðarsson. Ljósmynd/Golf.is

Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG og Sara Kristinsdóttir úr GM stóðu uppi sem sigurvegarar á Landsmótinu í golfhermum sem fór fram í Ryder/Solheim hermasalnum í íþróttamiðstöð GKG um helgina.

Úrslitin fóru fram í gær þar sem Sigurður Arnar fagnaði sigri í annað sinn og Sara í fyrsta sinn.

Notkun golfherma hefur færst mikið í aukana hér á landi undanfarin ár og séð til þess að golf er orðið að heilsárs íþrótt á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert