Sport

Auðvelt hjá Phoenix í Englaborginni

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Chris Paul átti frábæran leik í nótt
Chris Paul átti frábæran leik í nótt EPA-EFE/CAROLINE BREHMAN

Phoenix Suns vann nokkuð auðveldan sigur 115-105 gegn Los Angeles Lakers á heimavelli þeirra síðarnefndu í nótt. Chris Paul, leikmaður Phoenix, varð sá fyrsti í sögunni til þess að skora 20000 stig og gefa 10000 stoðsendingar. Tíu leikir voru leiknir í NBA deildinni í nótt.

Chris Paul skoraði 23 stig og gaf 14 stoðsendingar í leiknum sem var jafn í fyrsta leikhluta en svo tóku Phoenix við sér og völtuðu yfir Lakers. Náðu mest 33 stiga forskoti en lokatölur í leiknum voru 115-105, piltunum frá Arizona í vil. Lebron James skoraði 25 stig fyrir Lakers .

Liðsenn Lakers létu mótlætið fara í taugarnar á sér og það sauð uppúr á kafla í leiknum þegar að Anthony Davis og Dwight Howard lentu í útistöðum á bekknum. Ekki mikill kærleikur þarna en stríðsöxin var þó grafin síðar í leiknum.

Í baunaborginni Boston tóku heimamenn á móti mikið breyttu liði Toronto Raptors. Það er skemmst frá því að segja að Kanadamennirnir voru mun sterkari aðilinn í leiknum og lönduðu að lokum sanngjörnum sigri á lánlausum Boston, sem byrja tímabilið á tveimur tapleikjum. Það er huggun harmi gegn að það eru enn 80 leikir eftir til þess að rétta úr kútnum.

Nýliðinn Scottie Barnes, sem margir höfðu sett spurningamerki við, fór á kostum í leiknum og skoraði 25 stig og tók 13 fráköst. Hjá heimamönnum var Jayson Tatum atkvæðamestur með 18 stig.

Önnur úrslit næturinn voru eftirfarandi:

Charlotte Hornest vann Cleveland 123-112, New York Knicks vann auðveldan 121-96 sigur á Orlando Magic, Washington Wizards hafði betur gegn Indiana Pacers, 135-134 eftir framlengingu, Brooklyn Nets bar sigurorð af Philadelphia 76ers 114-109, Chicago Bulls valtaði yfir Zion-lausa New Orleans Pelicans 128-112, Houston Rockets unnu Oklahoma City Thunder 124-91, Denver Nuggets unnu nauman 102-96 sigur á San Antonio Spurs og Utah Jazz kláraði Sacramento Kings á lokametrunum, lokatölur þar 110-101.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×