Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mán 05. desember 2022 17:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cash fór svo sannarlega ekki tómhentur heim
Cash lék með pólska landsliðinu á HM.
Cash lék með pólska landsliðinu á HM.
Mynd: Getty Images
Matty Cash, leikmaður pólska landsliðsins, fór svo sannarlega ekki tómhentur heim af HM í Katar.

Cash fékk pólskan ríkisborgararétt í október 2021 en hann fæddist á Englandi og talar ekki pólsku. Cash er af pólskum ættum í móðurætt og afi hans fæddist í bæ sem var þá í Póllandi en tilheyrir í dag Úkraínu.

Cash, sem er á mála hjá Aston Villa á Englandi, lék í öllum leikjum Póllands á mótinu. Pólverjar féllu úr leik í 16-liða úrslitunum gegn Frakklandi í gær.

Pólland spilaði á móti stórstjörnum á mótinu en Cash fékk flottar treyjur eftir leikina sem hann spilaði. Hann fer ekki heim með bikarinn en hann fær þess í stað svalar treyjur.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af honum með tvær af þeim treyjum sem hann fékk; tvær af þeim flottari.


Athugasemdir
banner
banner
banner