Stórslasaðar á gjörgæslu en ekki í lífshættu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. september 2021 16:38 Spítalinn á Tenerife þar sem konurnar tvær eru á gjörgæslu. Eiginmaður konu sem slasaðist alvarlega þegar króna féll úr pálmatré á veitingastað á Tenerife á sunnudaginn segir eiginkonu sína og vinkonu hennar enn á gjörgæslu. Konurnar séu ekki í lífshættu en mikið slasaðar.
Slysið átti sér stað á Ameríkuströndinni í bænum Arona á suðvestanverðri Tenerife-eyju um klukkan fjögur síðdegis á sunnudag. Toppur pálmatrés hrundi þá skyndilega á fimm íslenskar konur á fimmtugsaldri sem sátu við veitingastað. Þær voru í vinkonuferð í sólinni. Tvær konur slösuðust mest og gengust báðar undir aðgerð. Þær eru enn á gjörgæsludeild að sögn eiginmanns annarrar konunar sem baðst undan því að koma undir nafni. Spítalinn virðist fyrsta flokks Vísir ræddi við eina konuna í gær sem sagði að hvasst hafi verið á sunnudaginn en svo virtist sem að ekkert hafi verið hugsað um trén sem standa við göngugötu. Hún taldi að toppurinn sem féll hafi vegið mörg hundruð kíló og að hann hafi hrunið úr fimm til sex metra hæð. Eiginmaðurinn flaug utan í gær ásamt eiginmanni hinnar konunnar sem er slösuð á gjörgæslu. Honum sýnist spítalinn fyrsta flokks hvar konurnar liggja og eiginmennirnir fá að hitta þær í stuttan tíma á hverjum degi. Þar geti þau rætt saman en konurnar séu við mikla lyfjagjöf eftir slysið og aðgerðina sem fylgdi. Helst sé um að ræða áverka á brjósti og baki, rifbein og annað slíkt. Mikil umræða um slysið á Tenerife Aðspurður hvort þau séu bjartsýn á bata segist eiginmaðurinn auðvitað verða að vona það besta. Staðan sé þó enn krítísk. Þó konurnar séu ekki í lífshættu liggi þær enn á gjörgæslu mikið slasaðar. Hann sér fram á að vera ytra næstu vikurnar og finnur fyrir hlýhug að heiman. Þeim hafi borist margar kveðjur og margir haft samband. Aðspurður segir hann málið hafa verið mikið í fréttum ytra og skapað mikla umræðu. Enda sé þetta ekki í fyrsta skipti sem svona slys gerist. Hinar þrjár konurnar slösuðust minna og eru á leiðinni heim til Íslands.
Spánn Íslendingar erlendis Lentu undir pálmatré á Tenerife Kanaríeyjar Tengdar fréttir Urðu undir hundruð kílóa trjátoppi á meðan þær skoðuðu matseðilinn Ein íslensku kvennanna sem varð undir hluta af pálmatré á spænsku eyjunni Tenerife segir að toppur trésins hafi hrunið fyrirvaralaust á þær á meðan þær skoðuðu matseðilinn. Tvær þeirra liggja nú á gjörgæslu. 14. september 2021 15:21 Verulega slasaðar eftir að pálmatré féll á þær á Tenerife Tvær íslenskar konur eru verulega slasaðar á gjörgæsludeild eftir að pálmatré féll á þær og þrjár aðrar fyrir utan veitingastað á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Símum kvennanna var stolið þar sem þær lágu í sárum sínum, að sögn eiginmanns einnar þeirra. 14. september 2021 09:14 Þrjár íslenskar konur slösuðust þegar pálmatré féll á þær Þrjár íslenskar konur eru slasaðar eftir að hafa orðið fyrir pálmatré í bænum San Miguel de Abona á spænsku eyjunni Tenerife í gær. 13. september 2021 20:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Fleiri fréttir Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Sjá meira
Urðu undir hundruð kílóa trjátoppi á meðan þær skoðuðu matseðilinn Ein íslensku kvennanna sem varð undir hluta af pálmatré á spænsku eyjunni Tenerife segir að toppur trésins hafi hrunið fyrirvaralaust á þær á meðan þær skoðuðu matseðilinn. Tvær þeirra liggja nú á gjörgæslu. 14. september 2021 15:21
Verulega slasaðar eftir að pálmatré féll á þær á Tenerife Tvær íslenskar konur eru verulega slasaðar á gjörgæsludeild eftir að pálmatré féll á þær og þrjár aðrar fyrir utan veitingastað á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Símum kvennanna var stolið þar sem þær lágu í sárum sínum, að sögn eiginmanns einnar þeirra. 14. september 2021 09:14
Þrjár íslenskar konur slösuðust þegar pálmatré féll á þær Þrjár íslenskar konur eru slasaðar eftir að hafa orðið fyrir pálmatré í bænum San Miguel de Abona á spænsku eyjunni Tenerife í gær. 13. september 2021 20:09