Gera ráð fyrir átta til tíu þúsund mótsgestum Telma Tómasson skrifar 4. júlí 2022 11:01 Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna 2022. Áætlanir gera ráð fyrir átta til tíu þúsund mótsgestum. Vísir/Telma Von er á þúsundum gesta á Landsmót hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu. „Stemningin er frábær nú þegar,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri LM2022 en mótið stendur yfir alla vikuna. „
Landsmót eru haldin á tveggja ára fresti en mótinu var aflýst 2020 vegna Covid. Hestamenn hafa því beðið lengi, eru spenntir að koma saman, upplifa hinn glæsilega íslenska gæðing og hitta mann og annan. Raunhæfar áætlanir gera ráð fyrir átta til tíu þúsund mótsgestum og við vonum að það gangi eftir.“ Hróður íslenska hestsins nær út fyrir landsteinana og er því von á talsverðum fjölda erlendra gesta einnig. „Við vorum meira að segja að fá óskir frá útlendu hestafólki um gistingu nú á lokametrum undirbúnings. Það er mjög ólíkt þeim, yfirleitt er allt skipulagt langt fram í tímann.“ Upp undir 800 hross eru skráð til leiks í gæðingakeppni, íþróttakeppni, skeiðgreinum og kynbótasýningum. ,,Þetta er alveg risastórt og mjög fjölbreytt. Við fáum að sjá alla bestu hesta landsins í öllum keppnisgreinum. Ég get fullyrt að mótið verður veisla, við getum ekki óskað okkur neitt meira eða betra en þetta,“ segir Magnús. Orri frá Þúfu í lykilhlutverki Mótshaldarar hafa metnað fyrir því að sem flest af því sem sýnilegt er hafi tilvísun í héraðið og endurrspegla sérsmíðaðir verðlaunagripir þessa ímynd. ,,Með fullri virðingu fyrir öllum þeim fjölda úrvals hesta sem Suðurlandið hefur alið af sér þá er þeirra frægastur Orri frá Þúfu, sem hefur markað ein dýpstu spor í ræktunarstarf íslenska hestsins í nútímanum. Orri sem nú er fallinn er nokkurs konar ,,andlit“ mótsins, en hann vann B-flokk hér á þessum keppnisvelli árið 1994.“ Listamaðurinn Gunnhildur Jónsdóttir fékk það verkefni að mála mynd af Orra í fullri stærð, en ljósmynd af frumgerðinni prentuð á gler prýðir alla verðlaunagripi mótsins, sem er svo greipt í steinmola úr Hekluhrauni. ,,Þetta er fallegur og eigulegur verðlaunagripur, en málverkið sjálft verður svo til sýnis og geta mótsgestir boðið í það. Ágóðinn rennur síðan til góðgerðarmála, en þetta er samvinna listamannsins og Landsmóts,“ sagði Magnús. Loksins Landsmót Landsmót nær hápunkti um helgina, en öll helstu úrslit verða riðin á föstudag og laugardag. En það verður væntanlega líka mikil gleði, eins og alltaf á Landsmóti hestamanna. ,,Það verður heilmikið um að vera. Bylgjulestin kemur til okkar á laugardeginum, barnadagskrá er vel skipulögð og boðið upp á markaðstjöld og matargleði. Síðan verða hér heljarinnar dansleikir, alvöru sveitaböll; Páll Óskar og Helgi Björns á föstudagskvöld og Paparnir á laugardagskvöldinu. Það verður margt um manninn og mikið stuð, mótið er á allan hátt metnaðarfullt að okkur finnst. Það er loksins Landsmót,“ sagði Magnús að lokum og var rokinn, enda í mörg horn að líta. Dagskrá LM2022 má sjá hér að neðan: Beinar útsendingar og dagleg samantekt á Vísi Streymisveitan Alendis TV tryggði sér útsendingarétt á Landsmóti og sýnir bæði frá keppnisbrautinni og kynbótabrautinni. Vísir verður í samstarfi við Alendis, sýnir daglega samantekt og tengist beinni útsendingu frá völdum dagskrárliðum á kvöldin. Lesendur Vísir og áhorfendur Stöðvar 2 Vísis geta því fengið nasaþefinn af því sem Landsmót hestamanna býður upp á í ár, en útsendingu frá allri dagskrá má síðan nálgast með áskrift á alendis.is. Hér að neðan má sjá yfirlit úr forkeppni í barna- og unglingaflokkum sem fram fóru í gær. Klippa: Forkeppni í barnaflokki - Landsmót hestamanna Klippa: Forkeppni í unglingaflokki - Landsmót hestamanna
Hestar Rangárþing ytra Landsmót hestamanna Bylgjulestin Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Arna spilar með FH næstu þrjú árin Bjarki Már og félagar í góðri stöðu „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ PSG mætir Lyon í undanúrslitum Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Þórsara dreymir um heimavallarrétt Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Verstappen efstur á óskalista Mercedes: Ummæli Toto kynda undir sögusagnir „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Djokovic segir þjálfaranum upp Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti