Íslenski boltinn

Segir að það hafi verið mistök að reka Willum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Willum Þór Þórsson og Börkur Edvardsson áttu stóran þátt í að rífa karlalið Vals úr öskustónni.
Willum Þór Þórsson og Börkur Edvardsson áttu stóran þátt í að rífa karlalið Vals úr öskustónni. vísir/stöð 2 Sport/vilhelm

Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, viðurkennir að hafa gert mistök þegar Willum Þór Þórssyni var sagt upp sem þjálfara liðsins um mitt sumar 2009.

Börkur hefur lengi haldið um stjórnartaumana hjá Val og á þeim tíma þurft að taka erfiðar ákvarðanir eins og að skipta um þjálfara.

„Þegar þetta hefur gerst hjá okkur, ekki oft sem betur fer, hefur mér liðið illa, andvökunætur og samviskan kvelur mann,“ sagði Börkur í samtali við Henry Birgi Gunnarsson í öðrum þætti Foringjanna.

Börkur segist hafa tekið ranga ákvörðun þegar Willum var sagt upp störfum sumarið 2009.

„Það er eitt atriði sem situr alltaf í mér og ég sé mikið eftir því. Eftir á taldi ég okkur taka ranga ákvörðun en maður þarf að læra að lifa með því. Það var þegar Willum yfirgaf Hlíðarenda. Það var rangt skref af okkar hálfu og ég sé alltaf eftir því,“ sagði Börkur.

Klippa: Foringjarnir - Börkur um brotthvarf Willums

Willum tók við Val haustið 2004. Á fyrsta tímabilinu undir hans stjórn urðu Valsmenn, sem voru þá nýliðar, bikarmeistarar og lentu í 2. sæti Landsbankadeildarinnar. Árið 2007 varð Valur svo Íslandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu ár. En næstu ár voru strembin.

„Við vorum á erfiðum tíma sem félag, fótboltalið, þarna. Við höfðum rifið félagið í gang eftir mjög mögur ár þar á undan og vorum farnir að finna bragðið af því að vinna titla og vera á toppnum. Við misstum aðeins fótanna sem var ekkert honum að kenna, ekki frekar en mér, og úr varð að hann lét af störfum,“ sagði Börkur. 

Willum fór erlendis á þjálfaranámskeið sumarið 2009 og skömmu eftir heimkomuna skildu leiðir hjá honum og Val.

„Það var önnur ára yfir félaginu þegar hann kom til baka og úr varð að við ákváðum að semja um starfslok. Eftir á voru það mistök,“ sagði Börkur.

Innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Foringjarnir eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports á sunnudagskvöldum en þar ræðir Henry Birgir Gunnarsson við nokkra af helstu íþróttaforingjum landsins síðustu áratugi. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á Stöð 2+.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×