Ætlar að brúa bilið gegn þjálfaranum sem heillaði hann svo mikið Sindri Sverrisson skrifar 17. apríl 2021 08:00 Phil Foden og félagar í Manchester City unnu 3-1 gegn Chelsea í deildarleik í janúar, skömmu áður en Thomas Tuchel tók við Chelsea af Frank Lampard. EPA-EFE/Andy Rain Þó að tuttugu stig skilji Manchester City og Chelsea að má búast við spennandi leik þegar liðin mætast í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley í dag. Thomas Tuchel segist snemma hafa hrifist mjög af Pep Guardiola en Tuchel, sem tók við Chelsea undir lok janúar, hefur aldrei tekist að stýra liði til sigurs gegn liði Guardiola. Tuchel hefur gert til þess fimm tilraunir, tvær með Mainz og þrjár með Dortmund, þegar Guardiola stýrði Bayern München. „Þegar hann [Guardiola] þjálfaði Barcelona þá hafði ég ekki haft tækifæri til að kynnast honum persónulega, en ég horfði á nánast alla leiki. Ég var mjög heillaður af því hvernig þeir náðu sínum árangri, hvernig leikstíll liðsins var, allir akademíustrákarnir og hvernig liðið hélt boltanum í sókn,“ sagði Tuchel. Getur gert út um vonir City um fernuna Þjóðverjinn viðurkennir fúslega að það sé bil á milli City og Chelsea, eins og stöðutaflan í ensku úrvalsdeildinni sýnir. Hann ætlar þó að gera sitt til að stöðva City sem á enn möguleika á að vinna fernuna á þessari leiktíð. City mætir Tottenham í úrslitaleik enska deildabikarsins 25. apríl, er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu og með gott forskot á toppi úrvalsdeildarinnar. „Við verðum að viðurkenna að það er bil á milli okkar og Manchester City. Ef maður horfir á leiki liðanna í ensku úrvalsdeildinni í ár og síðustu ár þá verður maður að sætta sig við þessa staðreynd. En það er mikilvægt að við viðurkennum þetta án þess að verða litlir í okkur. Frá fyrsta degi á næstu leiktíð ætlum við að ráðast á þá. Við munum reyna allt til að brúa bilið á milli liðanna,“ sagði Tuchel. Agüero og Kovacic úr leik Manchester City verður án Sergio Agüero sem misst hefur af síðustu tveimur leikjum. Chelsea verður án króatíska miðjumannsins Mateo Kovacic sem meiddist í læri á æfingu, og Andreas Christensen er einnig meiddur. Chelsea á möguleika á að komast í úrslitaleik bikarsins í 15. sinn, og í fjórða sinn á síðustu fimm leiktíðum, en City freistar þess að komast í úrslitaleikinn í 12. sinn. City hefur aðeins tapað einum af síðustu tíu leikjum sínum á Wembley en það var í undanúrslitum bikarsins gegn ríkjandi meisturum Arsenal í fyrra. Leikur Man. City og Chelsea hefst kl. 16.30 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Í seinni undanúrslitaleiknum, á morgun kl. 17.30, mætast Leicester og Southampton, einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Enski boltinn Mest lesið „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Körfubolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Enski boltinn Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Handbolti Fleiri fréttir Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Sjá meira
Thomas Tuchel segist snemma hafa hrifist mjög af Pep Guardiola en Tuchel, sem tók við Chelsea undir lok janúar, hefur aldrei tekist að stýra liði til sigurs gegn liði Guardiola. Tuchel hefur gert til þess fimm tilraunir, tvær með Mainz og þrjár með Dortmund, þegar Guardiola stýrði Bayern München. „Þegar hann [Guardiola] þjálfaði Barcelona þá hafði ég ekki haft tækifæri til að kynnast honum persónulega, en ég horfði á nánast alla leiki. Ég var mjög heillaður af því hvernig þeir náðu sínum árangri, hvernig leikstíll liðsins var, allir akademíustrákarnir og hvernig liðið hélt boltanum í sókn,“ sagði Tuchel. Getur gert út um vonir City um fernuna Þjóðverjinn viðurkennir fúslega að það sé bil á milli City og Chelsea, eins og stöðutaflan í ensku úrvalsdeildinni sýnir. Hann ætlar þó að gera sitt til að stöðva City sem á enn möguleika á að vinna fernuna á þessari leiktíð. City mætir Tottenham í úrslitaleik enska deildabikarsins 25. apríl, er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu og með gott forskot á toppi úrvalsdeildarinnar. „Við verðum að viðurkenna að það er bil á milli okkar og Manchester City. Ef maður horfir á leiki liðanna í ensku úrvalsdeildinni í ár og síðustu ár þá verður maður að sætta sig við þessa staðreynd. En það er mikilvægt að við viðurkennum þetta án þess að verða litlir í okkur. Frá fyrsta degi á næstu leiktíð ætlum við að ráðast á þá. Við munum reyna allt til að brúa bilið á milli liðanna,“ sagði Tuchel. Agüero og Kovacic úr leik Manchester City verður án Sergio Agüero sem misst hefur af síðustu tveimur leikjum. Chelsea verður án króatíska miðjumannsins Mateo Kovacic sem meiddist í læri á æfingu, og Andreas Christensen er einnig meiddur. Chelsea á möguleika á að komast í úrslitaleik bikarsins í 15. sinn, og í fjórða sinn á síðustu fimm leiktíðum, en City freistar þess að komast í úrslitaleikinn í 12. sinn. City hefur aðeins tapað einum af síðustu tíu leikjum sínum á Wembley en það var í undanúrslitum bikarsins gegn ríkjandi meisturum Arsenal í fyrra. Leikur Man. City og Chelsea hefst kl. 16.30 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Í seinni undanúrslitaleiknum, á morgun kl. 17.30, mætast Leicester og Southampton, einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Enski boltinn Mest lesið „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Körfubolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Enski boltinn Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Handbolti Fleiri fréttir Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn