Átök í mótmælum vegna umdeildra breytinga á dómstólum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. mars 2023 08:00 Til átaka kom í gær. AP/Ohad Zwigenberg Benjamin Netanyahu, forsætisráherra Ísrael, sagðist í gær ákveðinn í því að knýja fram breytingar á lögum er varða dómstóla, þrátt fyrir hörð mótmæli síðustu vikna. Þúsundir mótmæltu breytingunum í gær og átök brutust út milli mótmælenda og stuðningsmanna Netanyahu.
Umræddar lagabreytingar munu gefa stjórnvöldum meira vald við útnefningu dómara, takmarka mjög vald hæstaréttar landsins til að úrskurða um lagasetningar og veita þinginu vald til að snúa, eða fara gegn, niðurstöðum dómstóla. Breytingarnar eru eitt heitasta innanríkismál Ísrael í sögu landsins, enda segja gagnrýnendur þær hreina og beina ógn við lýðræðið. „Þetta eru ekki endalok lýðræðisins heldur styrking lýðræðisins,“ vildi Netanyahu hins vegar meina í gær. Sagði hann breytingunum ætlað að koma aftur á valdajafnvægi milli kjörinna fulltrúa og ókjörinna dómara. Forsætisráðherrann sagði aukið vald stjórnvalda yfir útnefningum hæstaréttadómara opna dómstólinn fyrir fleiri sjónarmiðum, sem áður höfðu verið útilokuð. „Við viljum ekki dómstól sem er stjórnað, heldur dómstól sem er í jafnvægi,“ sagði hann. Netanyahu sagðist myndu gera allt til að lægja öldurnar vegna breytinganna. Þúsundir mótmæltu í Tel Aviv í gær. AP/Oded Balilty Mótmælendur eru hins vegar ekki á því að hætta og þá vakti það litla hrifningu að þingið samþykkti í gær með eins atkvæðis meirihluta að gera það enn erfiðara að fjarlægja forsætisráðherrann úr embætti. „Eins og þjófar um nótt hefur bandalagið nú samþykkt ógeðfelld og spillt persónuleg lög,“ sagði Yair Lapid, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, um löggjöfina sem færir valdið til að koma forsætisráðherranum frá úr höndum dómsmálaráðherra og dómstólanna í hendur þingsins. Nú þarf samþykki þriggja fjórðuhluta ráðherra og 80 af 120 þingmönnum til að koma forsætisráðherranum frá. Breytingin kemur sér afar vel fyrir Netanyahu en dómsmálaráðherrann hafði talað fyrir því að meina forsætisráðherranum aðkomu að breytingum á dómstólum, þar sem hann er sjálfur skotmarkið í nokkrum yfirstandandi dómsmálum.
Ísrael Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Erlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Fleiri fréttir Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Sjá meira