Óskar Hrafn og Heimir bítast um fyrsta Þungavigtarbikarinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2023 13:31 Óskar Hrafn Þorvaldsson og lærisveinar hans enduðu síðasta tímabil á því að vinna Íslandsmeistaratitilinn og gætu byrjað nýtt tímabil á að vinna titil í kvöld. Hér er Óskar Hrafn með Íslandsmeistaraskjöldinn við hlið konu sinnar Laufeyjar Kristjánsdóttur. Vísir/Hulda Margrét Fyrsti fótboltatitilinn á árinu 2023 er í boði í kvöld og verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Íslandsmeistarar Breiðabliks og FH spila þá til úrslita í Þungavigtarbikarnum og fer leikurinn fram á Kópavogsvelli. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og verður sýndur á Stöð 2 Sport 5. Þungavigtarbikarinn er nýtt æfingamót sem tók við af fótbolti.net mótinu eftir að dómarar vildu ekki dæma leiki í því móti. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, og Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, bítast því þarna um fyrsta Þungavigtarbikarinn í þessum leik í kvöld. Óskar Hrafn vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil sem þjálfari á síðasta ári en Heimir er nýkominn aftur til FH sem hann gerði fimm sinnum að Íslandsmeisturum frá 2008 til 2016. Blikar hafa verið í miklum ham í mótinu. Þeir unnu fyrst 5-1 sigur á Stjörnunni og fylgdu því eftir með að vinna nágranna sína í HK 4-1. Nýi sóknarmaðurinn Patrik Johanesen skoraði tvö mörk í HK-leiknum en hinn átján ára Tómas Orri Róbertsson skoraði þrjú mörk í þessum tveimur leikjum. Aðrir markaskorarar Blika í leikjunum tveimur voru Ágúst Eðvald Hlynsson, Stefán Ingi Sigurðarson, Ágúst Orri Þorsteinsson og Atli Þór Gunnarsson. FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með 3-0 sigri á ÍBV þar sem þeir Vuk Óskar Dimitrijevic, Finnur Orri Margeirsson og Dagur Þór Hafþórsson skoruðu mörkin. Vuk Óskar skoraði einnig í 2-1 sigri á Keflavík í hinum leiknum en þá skoraði Keflvíkingurinn í FH-liðinu, Davíð Snær Jóhannsson, hitt markið. Það er þegar ljóst að Stjarnan verður í þriðja sæti í mótinu en Garðbæingar unnu Keflavík í vítakeppni í leiknum um þriðja sætið. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Besta deild karla Þungavigtin Breiðablik FH Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Leik lokið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Í beinni: Keflavík - Breiðablik | Blikar fara suður með sjó Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti Magnaðsta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Keflavík - Breiðablik | Blikar fara suður með sjó KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin Sjá meira
Íslandsmeistarar Breiðabliks og FH spila þá til úrslita í Þungavigtarbikarnum og fer leikurinn fram á Kópavogsvelli. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og verður sýndur á Stöð 2 Sport 5. Þungavigtarbikarinn er nýtt æfingamót sem tók við af fótbolti.net mótinu eftir að dómarar vildu ekki dæma leiki í því móti. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, og Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, bítast því þarna um fyrsta Þungavigtarbikarinn í þessum leik í kvöld. Óskar Hrafn vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil sem þjálfari á síðasta ári en Heimir er nýkominn aftur til FH sem hann gerði fimm sinnum að Íslandsmeisturum frá 2008 til 2016. Blikar hafa verið í miklum ham í mótinu. Þeir unnu fyrst 5-1 sigur á Stjörnunni og fylgdu því eftir með að vinna nágranna sína í HK 4-1. Nýi sóknarmaðurinn Patrik Johanesen skoraði tvö mörk í HK-leiknum en hinn átján ára Tómas Orri Róbertsson skoraði þrjú mörk í þessum tveimur leikjum. Aðrir markaskorarar Blika í leikjunum tveimur voru Ágúst Eðvald Hlynsson, Stefán Ingi Sigurðarson, Ágúst Orri Þorsteinsson og Atli Þór Gunnarsson. FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með 3-0 sigri á ÍBV þar sem þeir Vuk Óskar Dimitrijevic, Finnur Orri Margeirsson og Dagur Þór Hafþórsson skoruðu mörkin. Vuk Óskar skoraði einnig í 2-1 sigri á Keflavík í hinum leiknum en þá skoraði Keflvíkingurinn í FH-liðinu, Davíð Snær Jóhannsson, hitt markið. Það er þegar ljóst að Stjarnan verður í þriðja sæti í mótinu en Garðbæingar unnu Keflavík í vítakeppni í leiknum um þriðja sætið. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deild karla Þungavigtin Breiðablik FH Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Leik lokið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Í beinni: Keflavík - Breiðablik | Blikar fara suður með sjó Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti Magnaðsta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Keflavík - Breiðablik | Blikar fara suður með sjó KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin Sjá meira
Leik lokið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Leik lokið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík með flautukörfu í framlengingu Körfubolti