Fór fram af hengju í vélsleðaslysi

Björgunarsveitir voru kallað út að Tjaldfelli norðan Skjaldbreiðar.
Björgunarsveitir voru kallað út að Tjaldfelli norðan Skjaldbreiðar. mbl.is/Árni Sæberg

Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út rétt upp úr klukkan 12 í dag vegna vélsleðaslyss við Tjaldafell norðan Skjaldbreiðar. 

Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg að kona hafi slasast þegar vélsleði hennar fór fram af hengju. Mun konan vera talsvert verkjuð. Hún var á ferðalagi með hópi fólks sem kom henni í skjól í nærliggjandi skála og hlúir að henni á meðan beðið er eftir hjálp. 

Sjúkraflutningamenn frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands voru í samfloti með björgunarsveitarmönnum, en konan var flutt af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert