Samuel Norðurlandameistari

Samuel Josh Ramos, annar frá vinstri.
Samuel Josh Ramos, annar frá vinstri. Ljósmynd/ Kristján U. Kristjánsson

Íslenski karatemaðurinn, Samuel Josh Ramos er Norðurlandameistari í -67kg flokki flokki karla í kumite, frjálsum bardaga. Eftir sigur á Lettanum Kristians Anri Petersons í úrslitum í gær.

Hann mætti Leevi Saario frá Finnlandi og Nichlas Helfred Johansen frá Noregi undanúrslitum og vann þá báða 2:0.

Úrslitaviðureignin var jöfn og spennandi og endaði 1:1 en þar sem Samuel var fyrri til þess að skora vann hann viðureignina.

Besti árangur Íslands frá upphafi

Íslendingar áttu frábæran dag á mótinu og unnu alls þrettán verðlaun: eitt gull, fimm silfur og sjö brons. Þetta er liðsmet, því áður hafði Ísland mest unnið 11 verðlaun á Norðurlandamóti.

Í einstaklingsgreinum kepptu, auk Samuels, þrír Íslendingar til úrslita í sínum flokkum. Hugi Halldórsson tapaði gegn Noah Kristensen í úrslitum. Þar fóru leikar á endanum 5:3 hinum danska í vil.

Una Borg Garðarsdóttir vann til silfurverðlauna í kata 16-17 ára stúlkna. Hún mætti sænsku Tuvu Westlund í úrslitum. Una framkvæmdi kata Suparinpei og hlaut ágætis einkunn fyrir, 23,00 stig, en Tuva hlaut 23,90 stig fyrir framkvæmd sína á Ohan og hirti því gullið.

Karen Thuy Duong Vu komst í úrslit í -48 kg flokki 16-17 ára stúlkna, en hún átti þar titil að verja síðan í fyrra. Þar tapaði hún gegn sænsku Agnesi Nyman, nýkrýndum Evrópumeistara sem situr í efsta sæti heimslistans. 

Þórður Jökull Henrysson átti öfluga innkomu í kataflokki karla. Hann tryggði sér bronsið með sannfærandi sigri á Dananum Mark Løytved, 24,20 gegn 23,30.

Þá unnu Embla Rebekka Halldórsdóttir, Filip Leon Kristófersson, Eydís Magnea Friðriksdóttir, Ísold Klara Felixdóttir og Ólafur Engilbert Árnason öll til bronsverðlauna í sínum flokkum.

Í liðakeppni unnu Íslendingar silfur í hópkata karla og brons í hópkata kvenna. Þá tók unglingalið Íslands silfur í kynjablandaðri liðakeppni, sem er ný keppnisgrein á Norðurlandamótinu þar sem piltar og stúlkur mynda saman lið og keppa til skiptis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert