Viðskipti innlent

Frumtak fjárfestir í Ankeri fyrir 300 milljónir

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Mynd fv., stjórnendur Ankeri: Óskar Sigþórsson, Leifur Kristjánsson, Kristinn Aspelund, Nanna Einarsdottir og Helgi Benediktsson
Mynd fv., stjórnendur Ankeri: Óskar Sigþórsson, Leifur Kristjánsson, Kristinn Aspelund, Nanna Einarsdottir og Helgi Benediktsson Vísir/Aðsend

Fyrirtækið Ankeri, sem þróar hugbúnaðarlausnir fyrir skipaiðnaðinn, tilkynnti í dag 300 milljón króna fjármögnun frá Frumtaki.

Fjármagnið mun nýtast félaginu við áframhaldandi þróun hugbúnaðarins og uppbyggingu sölustarfs á alþjóðlegum mörkuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér.

Þar kemur fram að Ankeri hefur þegar haslað sér völl á þessum markaði og er þýski skiparisinn Hapag-Lloyd á meðal viðskiptavina þess.

Hugbúnaðarlausn Ankeri gerir viðskiptavinum sínum kleift að nálgast mikilvægar rekstrarupplýsingar á auðveldan hátt með það að leiðarljósi að taka hagkvæmar og sjálfbærar ákvarðanir varðandi rekstur skiptaflutninga. Félagið hefur þróað skýjalausn sem tvinnar saman hagsmuni eigenda og leigjenda skipa með bættri upplýsingagjöf, betri orkunýtingu og minni útblæstri skipaflotans. Þannig leggur Ankeri sitt af mörkum í grænni þróun og orkuskiptum heimsflotans.

Félagið var stofnað árið 2016 af Kristni Aspelund og Leifi Kristjánssyni sem hvor um sig hafa yfir fimmtán ára reynslu í skipaiðnaðinum. Félagið hefur áður verið styrkt af Tækniþróunarsjóði og meðal hluthafa eru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Hermann Kristjánsson. Hlutafjáraukningin verður nýtt til að tvö- til þrefalda starfsmannafjölda í vöruþróun og sölustarfi á næstu tólf mánuðum. Reiknað er með að tekjur félagsins tífaldist á næstu tveimur árum.

Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeris:

„Það eru mjög áhugaverð tækifæri í skipaiðnaðinum. Hingað til hefur stafræn þróun og sjálfvirknivæðing þar verið eftirbátur annarra greina. Eftirspurn eftir lausnum sem veita auðvelt aðgengi að nauðsynlegum gögnum til ákvarðanatöku er mikil. Í dag er algengt að gögn séu slegin inn handvirkt og upplýsingar vistaðar víða og oft í vanþróuðum kerfum. Sífellt aukin áhersla á umhverfismál og fyrirsjáanleg aukning á regluverki samhliða því felur líka í sér tækifæri fyrir okkur. Um 90% af öllum vörum eru á einhverjum tímapunkti fluttar með einhverju af 50.000 flutningaskipum heimsins. Jafnvel þótt skipaiðnaðurinn sé umhverfisvænasti máti flutninga þá má samt sem áður rekja um 3% af heildarútblæstri gróðurhúsalofttegunda til hans sem og notkun á um 300 milljón tonnum af jarðefnaeldsneyti árlega.”

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtaks:

„Við vitum að sumar af stærstu áskorununum í alþjóðlegum virðiskeðjum tengjast óhagkvæmni í flutningum og stopulum tengingum upplýsingakerfa. Þetta veldur auknum kostnaði og öðru óhagræði. Hugbúnaðarlausnir Ankeris gera viðskiptavinum þess kleift að takast á við þessar áskoranir, auka hagkvæmni í rekstri og á sama tíma leggja sitt af mörkum til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum skipaiðnarins. Við sjáum mikil tækifæri í lausnum félagsins.”





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×