Litháar bogna undan þrýstingi Kínverja Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2022 10:32 Frá ræðismannsskrifstofu Taívans í Vilníus. EPA Ráðamenn í Litháen ætla mögulega að biðja Taívana um að breyta formlegu heiti ræðismannsskrifstofu Taívans í Litháen. Opnun skrifstofunnar hefur leitt til þess að Kína hefur beitt Litháen gífurlegum þrýstingi á undanförnum mánuðum.
Taívan opnaði ræðismannsskrifstofu í Litháen sem er formlega opnuð undir nafni Taívans. Því hafa Kínverjar, sem gera tilkall til eyríkisins, mótmælt harðlega og hafa þeir beitt Litháa miklum þrýstingi. Ráðamenn í Kína hafa að undanförnu aukið þrýsting á þau fáu ríki sem eiga í opinberum samskiptum við Taívan. Eyríkið, sem Kína gerir tilkall til og hefur heitið að sameina meginlandinu, rekur sambærilegar skrifstofur víða um Evrópu í Bandaríkjunum en þær bera nafn Taipei, höfuðborgar landsins. Meðal annars hafa ráðamenn í Kína sagt alþjóðlegum fyrirtækjum að slíta öll tengsl við Litháen eða eiga á hættu að vera útilokuð frá mörkuðum í Kína. Kínverjar hafa stöðvað allan innflutning frá Litháen. Sjá einnig: Kínverjar þrýsta á alþjóðleg fyrirtæki um að slíta tengsl við Litháen Samkvæmt heimildum Reuters fréttaveitunnar frá Vilníus íhuga ráðamenn í Litháen nú að láta undan þeim þrýstingi sem ríkið hefur verið beitt. Fréttaveitan segir Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra, hafa lagt til við Gitanas Nauseda, forseta, að hægt yrði að breyta nafninu svo það vísaði ekki til Taívans sem ríkis heldur taívanska fólksins. Nauseda hefur verið mjög gagnrýninn á þá afstöðu varðandi Taívan sem Litháar hafa tekið. Stjórnarflokkar Litháens samþykktu fyrir rúmu ári síðan að styðja „þá sem berjast fyrir frelsi í Taívan,“ eins og það var orðað. Í kjölfar opnunar skrifstofunnar kvörtuðu Kínverjar yfir því að Litháar hefðu hunsað viðvaranir þeirra og takmörkuðu samskipti ríkjanna. Sjá einnig: Erindrekar Litháens kallaðir heim frá Kína vegna „ógnana“ Ríkisstjórn Taívans segir að engin beiðni um að breyta nafninu hafi borist. Financial Times sagði frá því í síðustu viku að ráðamenn í Taívan hefðu beðið yfirvöld Bandaríkjanna um leyfi til að breyta nafni óformlegs sendiráðs eyríkisins í Washington DC svo það innihéldi nafn Taívan. Bandaríkjamenn hafa ekki orðið við þeirri beiðni.
Taívan Litháen Kína Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Fleiri fréttir Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Sjá meira