Áströlsku leikmennirnir miklir Messi-aðdáendur (myndskeið)

Lionel Messi fagnar marki sínu gegn Ástralíu.
Lionel Messi fagnar marki sínu gegn Ástralíu. AFP/Alfredo Estrella

Þrátt fyrir 1:2-tap Ástralíu gegn Argentínu á HM karla í fótbolta í Katar á laugardaginn var eru leikmenn ástralska liðsins enn aðdáendur Lionels Messi, eins besta knattspyrnumanns sögunnar.

Messi skoraði fyrra mark Argentínu í 2:1-sigri, en leikmenn ástralska liðsins voru fljótir að fyrirgefa leikmanninum, því þeir vildu fá mynd af sér með honum eftir leik.

Í myndskeiði sem Sportsbible birtir á Twitter, má sjá nokkra leikmenn ástralska liðsins hitta Messi eftir leik, ólmir í að fá mynd af sér með kappanum.

Myndskeiðið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert