Fótbolti

Sara og stöllur enduðu tímabilið á stórsigri gegn toppliðinu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Juventus enda tímabilið á stórsigri.
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Juventus enda tímabilið á stórsigri. Jonathan Moscrop/Getty Images

Sara Bjrök Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Juventus unnu afar sannfærandi 5-2 sigur er liðið tók á móti nýkrýndum Ítalíumeisturum Roma í lokaumferð ítölsku deildarinnar í dag.

Heimakonur í Juventus tóku forystuna snemma leiks með marki frá Paulina Nystrom áður en Cristiana Girelli og Valentina Cernoia bættu sínu markinu hvor við fyrir hálfleik. 

Staðan því 3-9 þegar liðin gengu til búningsherbergja, en Sofia Cantore skoraði fjórða mark heimakvenna snemma í síðari hálfleik.

Gestirnir klóruðu í bakkann með tveimur mörkum með stuttu millibili þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leiksloka, en Sofie Junge-Pedersen gerði endanlega út um leikinn fyrir Juventus með marki á 79. mínútu.

Niðurstaðan því 5-2 sigur Juventus, en Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn af varamannabekknum þegar um 25 mínútur voru til leiksloka. Juventus endar tímabilið með 54 stig í öðru sæti deildarinnar, 13 stigum á eftir meisturum Roma.

á sama tíma máttu Anna Björk Kristjánsdóttir og stöllur hennar í Inter þola 1-0 tap á heimavelli gegn nágrönnum sínum í AC Milan.

Inter endar því á botni efri hluta deildarinnar með 39 stig, en AC Milan í þriðja sæti með 44 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×