Fá níu landsliðsmenn Íslands ekki að koma í landsleikina?

Guðmundur Þórður Guðmundsson ræðir við sína menn.
Guðmundur Þórður Guðmundsson ræðir við sína menn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þýsk handknattleiksfélög ætla að neita leikmönnum sínum um að fara í landsleiki í nóvembermánuði, samkvæmt fréttum þýskra fjölmiðla í morgun en það er handbolti.is sem greinir frá þessu.

Ísland á heimaleiki gegn Litháen og Ísrael 4. og 7. nóvember og eru níu leikmenn af þeim sautján sem Guðmundur Þ. Guðmundsson hefur valið fyrir þá á mála hjá þýskum liðum, ásamt því að Guðmundur er þjálfari Melsungen. Aðstoðarmaður hans, Tomas Svensson, starfar hjá Magdeburg.

Forráðamenn félaganna segja að þetta sé til þess að tryggja heilsu leikmannanna gagnvart kórónuveirunni en Ísland hefur að undanförnu verið á lista Þjóðverja yfir hættusvæði vegna veirunnar.

Leikmennirnir níu eru Bjarki Már Elísson, Oddur Gretarsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Janus Daði Smárason, Ómar Ingi Magnússon, Viggó Kristjánsson, Arnór Þór Gunnarsson, Arnar Freyr Arnarsson og Ýmir Örn Gíslason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert