Norræna flutningamannasambandið fordæmir Icelandair Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 6. ágúst 2020 14:13 Norræna flutningamannasambandið fordæmir aðgerðir Icelandair í kjaradeilunni við flugfreyjur. Vísir/Vilhelm
Norræna flutningamannasambandið, NTF, fordæmir aðgerðir Icelandair í kjaraviðræðum félagsins við Flugfreyjufélag Íslands. Sambandið hvetur Icelandair jafnframt til að bæta starfsandann hjá félaginu en svipaðar aðstæður hafi komið upp eftir kjaraviðræður annars félags og þar hafi starfsumhverfið, mörgum árum eftir atburðina, enn verið á ótraustum grunni. Í yfirlýsingu frá NTF segir að ljóst sé að hinir ýmsu atvinnuvegir hafi orðið fyrir miklum skaða vegna kórónuveirufaraldursins, ekki síst flutningsgeirinn. Það liggi einnig í augum uppi að grafalvarleg staða sé uppi hjá mörgum flugfélögum en lausn vandans sé hins vegar ekki sú að beita stéttarfélög þrýstingi og hótunum til þess að veikja kjarasamninga. „Við urðum fyrir miklum vonbrigðum þegar við fréttum frá FFÍ að á meðan á kjaraviðræðum stóð hafi Icelandair sagt upp öllum flugfreyjum með örstuttum fyrirvara. Fyrirtækið [sagði] FFÍ að það hygðist skipta út flugfreyjum fyrir flugmenn, sem höfðu á örskotsstund verið þjálfaðir til að gæta öryggis um borð. Þar að auki hafði fyrirtækið áætlanir um að semja við annað stéttarfélag og skipta FFÍ út, sem er eina félagið sem er í forsvari fyrir flugfreyjur á Íslandi,“ segir í yfirlýsingunni. Þá er það rifjað upp að kjarasamningar hafi verið samþykktir á síðustu stundu. NTF lýsir hins vegar yfir óánægju sinni vegna aðferðanna sem Icelandair beitti. Svipaðar aðstæður hafi áður komið upp hjá öðru flugfélagi sem hafi verið í kjaraviðræðum og mörgum árum síðar hafi starfsandinn enn verið í molum vegna atburðanna. „Traust og gagnkvæm virðing eru lykilatriði þegar kemur að því að tryggja öruggt og gott starfsumhverfi um borð í flugvél. Enginn hópur starfsmanna ætti að vera notaður til þess að grafa undan hlutverki annarra starfsmanna. Við fordæmum harðlega áætlun félagsins og hvetjum fyrirtækið til að beita sig fyrir því að starfsandinn verði góður og allir sem eiga í hlut muni ná sáttum.“
Icelandair Kjaramál Tengdar fréttir „Best fyrir alla“ ef flugfreyjur hefðu samþykkt fyrri samninginn Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, segir það ekki hafa verið fyrsta val að slíta viðræðum Icelandair við Flugfreyjufélagið eftir að samningur var felldur í byrjun júlí. 2. ágúst 2020 12:27 Icelandair hefur undirritað samninga við flesta kröfuhafa Samningaviðræður Icelandair við kröfuhafa eru vel á veg komnar og hafa samningar við flesta kröfuhafa verið undirritaðir. 31. júlí 2020 22:42 Flugfreyjur Icelandair næstu tvo mánuði verði um 200 talsins Forstjóri Icelandair Group segir um 200 flugfreyjur og flugþjónar verði á mála hjá félaginu í ágúst og september, þetta kom fram í viðtali við Boga Nils í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. 27. júlí 2020 19:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Fleiri fréttir Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Sjá meira
„Best fyrir alla“ ef flugfreyjur hefðu samþykkt fyrri samninginn Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, segir það ekki hafa verið fyrsta val að slíta viðræðum Icelandair við Flugfreyjufélagið eftir að samningur var felldur í byrjun júlí. 2. ágúst 2020 12:27
Icelandair hefur undirritað samninga við flesta kröfuhafa Samningaviðræður Icelandair við kröfuhafa eru vel á veg komnar og hafa samningar við flesta kröfuhafa verið undirritaðir. 31. júlí 2020 22:42
Flugfreyjur Icelandair næstu tvo mánuði verði um 200 talsins Forstjóri Icelandair Group segir um 200 flugfreyjur og flugþjónar verði á mála hjá félaginu í ágúst og september, þetta kom fram í viðtali við Boga Nils í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. 27. júlí 2020 19:09