Sagði 497 símtöl á 23 dögum tengjast „bílaviðskiptum“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. desember 2020 22:09 Amfetamínframleiðslan fór fram í íbúð í Breiðholti. Vísir/vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur taldi félagana Matthías Jón Karlsson og Vygantas Visinskis ekki eiga sér neinar málsbætur í stórfelldu fíkniefnamáli, sem þeir voru dæmdir í fjögurra og tæplega sex ára fangelsi fyrir í dag. Matthías og Vygantas hringdust á 497 sinnum á 23 daga tímabili í vor en sá síðarnefndi sagði að símtölin hefðu tengst „bílaviðskiptum.“
Dómur yfir Matthíasi og Vygantasi var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og birtur síðdegis á vef héraðsdóms. Þeir voru dæmdir fyrir að hafa staðið að framleiðslu og haft í vörslum sínum rúmlega 11 kíló og 3,3 millilítra af amfetamíni sem ætlað var til sölu og dreifingar í ágóðaskyni. Framleiðslan fór fram í íbúð í Bakkahverfinu í Breiðholti þar sem lögregla lagði hald á ýmsa muni við húsleit. Þá var Matthías einnig dæmdur fyrir innflutning á kílói af kókaíni og peningaþvætti með því að hafa aflað sér ávinnings af fíkniefnasölu, samtals tæpum 16 milljónum króna. Skiptu fíkniefnunum út fyrir gerviefni Fram kemur í dómi að lögregla hafi fengið ábendingu í vor um að Vygantas og Matthías væru að undirbúa framleiðslu á sterkum fíkniefnum. Lögregla byrjaði því að fylgjast með þeim, m.a. í verslun Húsasmiðjunnar í apríl síðastliðnum þar sem þeir keyptu „þrjár hvítar plastskálar og tvo steikarspaða“. Síðar var lögreglu vísað á íbúð félaganna, þar sem fannst búnaður til fíkniefnaframleiðslu og rúmlega 11 kíló af amfetamíni. Þá er það rakið í málsgögnum að lögregla hafi skipt út fíkniefnunum fyrir gerviefni og haft eftirlit með íbúðinni, m.a. með því að setja hljóðupptökubúnað í tösku sem fíkniefnin voru geymd í. Amfetamínleifar á Crocs-skónum Vygantas gaf þrisvar skýrslu við rannsókn málsins. Í fyrstu skýrslunni tjáði hann sig ekkert um sakarefnið. Í annarri skýrslunni sagðist hann hafa leigt íbúðina af öðrum manni í tvær vikur og hefði ætlað hana fyrir dóttur sína. Hann kvaðst lítið hafa verið í íbúðinni. Þá sagði hann að amfetamínleifar sem fundust á Crocs-skóm gætu verið vegna þeirra amfetamínleifa sem voru á gólfinu þegar hann kom í íbúðina daginn sem hann og Matthías voru handteknir. Bæði Matthías og Vygantas neituðu sök í málinu að mestu leyti en játuðu báðir vörslu á um fjórum kílóum af amfetamíni. Þá játaði Matthías að hafa flutt inn kíló af kókaíni í september í fyrra en neitaði sök í ákæru um peningaþvætti. Viðurkenndi að símtölin hefðu verið nokkuð mörg Þá lá fyrir að Matthías og Vygantas hefðu á 23 dögum, frá 18. apríl til 11. maí síðastliðinn, átt 497 símtöl í gegnum forritið Signal. Þeir hringdust á fjórum sinnum á dag upp í 59 sinnum þann 30. apríl. Vygantas sagði fyrir dómi að þetta hefðu verið vinnutengd símtöl vegna bílaviðskipta og þeir hefðu verið að ræða málin. Honum fannst fjöldi símtalanna þó nokkuð hár. Þá kvað hann 761 þúsund krónur í reiðufé sem fundust heima hjá honum tengjast bílaviðskiptum hans. Engar málsbætur Dómurinn leit til þess við ákvörðun refsingar Matthíasar að hann hefði þegar verið sakfelldur fyrir fjölda alvarlegra brota. Hann hlaut til að mynda tveggja og hálfs árs fangelsisdóm í janúar í fyrra fyrir aðild sína að Bitcoin-málinu svokallaða. Þá leit dómurinn til þess að brot Matthíasar og Vygantasar að þau hefðu verið þaulskipulögð og þeir ættu sér engar málsbætur. Refsing þeirra var þannig ákveðin fimm ára og níu mánaða fangelsi í tilfelli Matthíasar en Vygantas sæti fangelsi í fjögur ár, að frádregnu gæsluvarðhaldi í báðum tilvikum. Þá voru félagarnir dæmdir til að greiða alls rúmar 14 milljónir króna í sakarkostnað og málsvarnarlaun verjenda sinna. Einnig voru fíkniefnin gerð upptæk, auk búnaðar sem fannst í íbúðinni og fjármunir sem fundust á heimili Vygantasar.
Dómsmál Reykjavík Smygl Tengdar fréttir Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 4. desember 2020 16:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Innlent „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Innlent Réðst á barn sem gerði dyraat Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Réðst á barn sem gerði dyraat Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Myndaði annan mann í sturtuklefanum Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Sjá meira
Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 4. desember 2020 16:07